Beint í efni

Meðferðarheimili að Friðarvöllum.

Málsnúmer 2304003

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

13. (2161). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu meðferðarheimilis að Friðarvöllum 1 og viðræðum við ríkisvaldið um málið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

9. (2157). fundur

Lagt fram bréf bæjarstjóra Garðabæjar til ráðherranefndar um öldrunarþjónustu og ráðherranefndar um málefni barna og ungmenna.

Í bréfinu kemur fram beiðni Garðabæjar um viðræður við ríkisvaldið um framtíð uppbyggingar á Vífilsstöðum.

Til skoðunar gæti þá komið nýting eigna á Vífilsstöðum, m.a. undir hjúkrunarheimili og skylda starfsemi. Jafnframt er bent á að Garðabær hefur ráðgert úthlutun byggingarlóða til byggingar hjúkrunarheimilis í uppbyggingarlandi í Vetrarmýri.

Ennfremur er í bréfinu áréttuð viljayfirlýsing Velferðarráðuneytisins, Barnaverndarstofu og Garðabæjar um uppbyggingu meðferðarheimilis fyrir börn, skv. samþykktu skipulagi í Garðabæ sem gerir ráð fyrir lóð fyrir meðferðarheimili fyrir börn að Friðarvöllum 1. Eins og ráða á af gögnum málsins hefur Garðabær fullan hug á að það verkefni raungerist.

Í erindinu er þess farið á leit að ráðherranefndirnar og/eða ráðherrar eða fulltrúar þeirra eigi fundi með Garðabæ um framangreind málefni.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. (922). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir samning við Ríkissjóð Íslands f.h. Barna- og fjölskyldustofu um úthlutun á lóð fyrir meðferðarheimili fyrir börn og ungmenni sem byggir á viljayfirlýsingu Garðabæjar, velferðarráðuneytis og Barnaverndarstofu, dags. 21. desember 2018.“ (Mál nr. 2304003)

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. (2069). fundur

Lagður fram til afgreiðslu samningur við Ríkissjóð f.h. Barna- og fjölskyldustofu um úthlutun á lóð fyrir meðferðarheimili fyrir börn og ungmenni sem byggir á viljayfirlýsingu Garðabæjar, velferðarráðuneytis og Barnaverndarstofu, dags. 21. desember 2018.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.