5. fundur
5. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
17.05.2023
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Innleiðing farsældar í Garðabæ
Kynning á stöðu innleiðingar farsældar barna í Garðabæ.
Kolbrún Þorkelsdóttir, verkefnastjóri innleiðingar farsældar barna í Garðabæ, situr fundinn undir þessum lið og svarar fyrirspurnum. Helga Guðmundsdóttir, málstjóri farsældar barna, situr einnig fundinn undir þessu lið.
02
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð desember 2022 til apríl 2023 lögð fram til umræðu og kynningar.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð desember 2022 til apríl 2023 lögð fram til kynningar.
03
Jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2022
Núgildandi Jafnréttisstefna Garðabæjar er frá árinu 2019 og fjölmenningarstefna Garðabæjar er frá árinu 2014. Umræða um næstu skref.
Fjölskylduráð felur fjölskyldusviði að hefja undirbúning að endurskoðun fjölmenningarstefnu og jafnréttisstefnu Garðabæjar.
04
Heimilislausir með fjölþættan vanda - Bókun 537. fundar stjórnar SSH
Skýrsla um málefni heimilislausra er afurð samstarfs Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Markmið með verkefninu var að greina hóp þeirra einstaklinga sem teljast vera heimilislausir og móta tillögur um hvernig bæta megi þjónustu við þennan hóp með sameiginlegu átaki sveitarfélaganna. Bæjarráð vísaði skýrslunni til meðferðar fjölskyldusviðs og til kynningar í fjölskylduráði.
Skýrsla samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi er lögð fram til kynningar.