Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Vetrarmýri.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
10. (2017). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Vetrarmýri.
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 32.339.200
VSÓ Ráðgjöf ehf kr. 32.674.000
Mannvit hf. kr. 32.188.000
Verkís hf. kr. 34.566.700
Strendingur ehf. kr. 24.050.000
Kostnaðaráætlun kr. 34.400.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Strendings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun