Beint í efni

Nónsmári 1-7 og 9-15. Breyting á deiliskipulagi í Kópavogi

Málsnúmer 2203246

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (902). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að koma á framfæri athugasemd við skipulagsyfirvöld í Kópavogi vegna hækkun á hæðum húsa samkvæmt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Nónsmára í Kópavogi. (Mál nr. 2203246)

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (2019). fundur

Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að gerð er athugasemd við hækkun húsa samkvæmt tillögunni um eina hæð en það er líklegt til að hafa í för með sér útsýniskerðingu úr fjölbýlishúsum við Nónhæð í Garðabæ

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að koma athugasemdinni á framfæri við skipulagsyfirvöld í Kópavogi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Lögð fram tillaga ð breytingu á deiliskipulags Nónsmára í Kópavogi sem liggur að bæjarmörkum við Arnarnesveg.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir athugasemd við hækkun húsa um eina hæð þar sem að byggingar munu að öllum líkindum skyggja á útsýni úr íbúðum fjölbýlishúsa við Nónhæð í Garðabæ til norðurs.

Bæjarráð Garðabæjar

04

10. (2017). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.