Beint í efni

Varðar samkomulag um úthlutun lóða við Breiðumýri á Álftanesi

Málsnúmer 2201110

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (899). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning Húsbyggs ehf. og Grásteinsmýrar ehf. um framsal lóðarréttinda við Grásteinsmýri 1-3, á Álftanesi.

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. (2012). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning Húsbyggs ehf. og Grásteinsmýrar ehf. um framsal lóðarréttinda vegna lóðarinnar við Hestamýri 1 - samkvæmt úthlutunasamningi um lóðir í Breiðumýri, dags. 14.ágúst 2020. Byggingarréttargjöld hafa verið að fullu greidd og við undirritun framsalssamnings kemur til greiðslu helmingur áætlaðra lágmarksgatnagerðargjalda kr. 107.949.232.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

2. (898). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samning Húsbyggs ehf. og Hestamýrar ehf. um framsal lóðarréttinda vegna lóðarinnar við Hestamýri 1 - 3, samkvæmt úthlutunarsamningi um lóðir í Breiðumýri, dags. 14.ágúst 2020. (Mál nr. 2201110)

Bæjarráð Garðabæjar

04

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning Húsbyggs ehf. og Hestamýrar ehf. um framsal lóðarréttinda vegna lóðarinnar við Hestamýri 1, 2 og 3, samkvæmt úthlutunasamningi um lóðir í Breiðumýri, dags. 14.ágúst 2020

Byggingarréttargjöld hafa verið að fullu greitt og við undirritun framsalssamnings kemur til greiðslu helmingur áætlaðra lágmarksgatnagerðargjalda kr. 107.949.232.

Bæjarráð Garðabæjar

05

1. (2008). fundur

Bæjarráð samþykkir í því skyni að flýta fyrir framkvæmdum og uppbyggingu svæðisins að heimila Húsbygg ehf. að framselja lóðarréttindi samkvæmt samningi um úthlutun lóða á miðsvæði Álftaness enda undirgangist framsalshafi ábyrgðir og skyldur samkvæmt upphaflegum samningi.

Framsalssamningur skal staðfestur í bæjarráði og fram skal koma að framsalshafi greiði innan mánaðar frá undirritun samnings 50% áætlaðra lágmarksgatnagerðargjalda af viðkomandi lóðum.