3. (899). fundur
3. (899). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.02.2022
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Gunnar Valur Gíslason
- Stella Stefánsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Valborg Ösp Á. Warén
- Guðlaugur Kristmundsson
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. febrúar 2022 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/2 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., kynningu Sorpu bs. á framtíðar möguleikum varðandi sorpbrennslu og 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi að nýju 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., kynningu Sorpu bs. á framtíðar möguleikum varðandi sorpbrennslu.
Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi að nýju 15. tl., beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti og 1. tl., kynningu Sorpu bs. á framtíðar möguleikum varðandi sorpbrennslu.
Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.8 - 2201110 - Varðar samkomulag um úthlutun lóða við Breiðumýri á Álftanesi
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning Húsbyggs ehf. og Grásteinsmýrar ehf. um framsal lóðarréttinda við Grásteinsmýri 1-3, á Álftanesi.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/2 ´22.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021 og óskaði skólafólki til hamingju með ánægju bæjarbúa með starf grunnskólans í Garðabæ. Þá ræddi Sigríður Hulda 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040 og 9. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021, 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040, 3. tl., tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, 4. tl., samning við ráðgjafa varðandi mótun tillagna að rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A og 14. tl., stöðumat á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040, 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021. Áslaug Hulda færði öllum starfsmönnum bæjarins þakkir fyrir þeirra störf en almennt eru bæjarbúar mjög ánægðir með þjónustu bæjarins, Þá ræddi Áslaug Hulda 9. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040 og 3. tl., tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021, 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040 og 9. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og að nýju 9. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021, 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040, 14. tl., stöðumat á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025 og 3. tl., tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040, 3. tl., tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og 9. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021, 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040 og 9. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021, 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040, 3. tl., tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og 6. tl., bréf Skátafélagsins Svana varðandi uppbyggingu á aðstöðu við Breiðumýri.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi að nýju 2. tl., skýrslu VSÓ Ráðgjafar um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021 og 14. tl., stöðumat á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021 og 14. tl., stöðumat á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021
Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.15 - 2201388 - Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmingu úrgangsflokkunar, dags. 20.01.22.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu samstarfshóps aðildarsveitarfélaganna um samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu og samþykkir yfirlýsingu um samstarf sveitarfélaganna vegna málsins. Bæjarstjóra falið fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita yfirlýsinguna.
Fylgiskjöl
- Umhverfisnefnd Garðabæjar - 41 (7.2.2022) - Samræming úrgangsflokkunar - Bókun 535. fundar stjórnar SSH.pdf
- Drög_yfirlýsing um samræmingu úrgangsflokkunar og kynningarstarf.pdf
- Minnisblað - samræming úrgangsflokkunar - lok verkefnis.pdf
- Samræming úrgangsflokkunar lokaskýrsla_jan.2022.pdf
- GBR Fylgibréf til sveitarfélaga_stjorn ssh_535 fundur_Samræming úrgangsflokkunar.pdf
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/2 ´22.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., tillögu um að greiða fulltrúum í ungmennaráði nefndarlaun, 5. tl., áætlun frístundabílsins í Miðgarð, 6. - 8. tl. stofnun nýrra íþróttafélaga í Garðabæ og 10. tl., tillögu Garðabæjarlistans um skipan rýnihóps um framtíðar starfsemi í fjölnota íþróttahúsi.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 7/2 ´22.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl. endurskoðun reglna um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuða, 3. tl., stöðu Hofsstaðverkefnis og 4. tl., beiðni Listahátíðar í Reykjavík um samstarf.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., endurskoðun reglna um hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuða.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargeð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 28/1 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi hlutverk samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og 1. tl., undirbúning framkvæmda við búsetukjarna í Brekkuási.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., undirbúning framkvæmda við búsetukjarna í Brekkuási.
Almar Guðmundsson, ræddi hlutverk samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð öldungaráðs frá 3/2 ´22.
Almar Guðmundsson, ræddi hlutverk öldungaráðs, 2. tl., heilsueflingu fyrir eldri borgara í Miðgarði, 4. tl., lagfæringar og endurbætur á húsnæði Jónshúss og 5. tl., stefnu í málefnum eldri borgara.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., heilsueflingu fyrir eldri borgara í Miðgarði og 3. tl., tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 28/1 ´22
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., útboð á akstri.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 2. tl., stöðu mála vegna gagnastuldar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., stöðu mála vegna gagnastuldar og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins / framkvæmdaráðs AHS frá 29/12 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerðir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins / framkvæmdaráðs AHS frá 4/1, 14/1 og 28/1 ´22.
Fundargerðirnar lagðar fram.
12
Samþykkt um hundahald - 2022
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samþykkt um hundahald til að gilda í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
13
Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun
Almar Guðmundsson, fylgdi úr hlaði tillögu að endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og gerði nánar grein fyrir vinnu við gerð nýrrar lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Almar gerði sérstaka grein fyrir viðaukum sem fylgja stefnunni og færði öllum sem komu að undirbúning að gerð stefnunnar þakkir fyrir þeirra störf. Þá fór Almar yfir nokkur atriði í aðgerðaráætlun stefnunnar.
Fram kom að um er að ræða endurskoðun á stefnu sem samþykkt var árið 2010. Skipaður var starfshópur til að vinna að málinu, leitað var eftir ábendingum íbúa og málið kynnt í fastanefndum bæjarstjórnar.
Með lýðræðisstefnu Garðabæjar eru lagðar línur fyrir farsælt samstarf til framtíðar milli kjörinna fulltrúa, stjórnsýslu og íbúa og annarra hagsmunaaðila með öflugri samráðsmenningu, rökræðum, samtali, samráði og upplýsingagjöf. Það verður gert með jákvæðni, fagmennsku og áreiðanleika í fyrirrúmi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða lýðræðisstefnu Garðabæjar sem byggir á meginmarkmiðunum þátttöku, þekkingu og þróun. Stefnan tekur jafnframt mið af þeim undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur valið sér til innleiðingar og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.