Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa
Ferill máls
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
01
2. fundur
Bréf frá umboðsmanni barna, dags. 28. jan. 2022 um mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og réttur barna til þátttöku og áhrif.
Lagt fram til kynningar .
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
42. fundur
Erindið lagt fram. Umræður um verkefnið barnvænt sveitarfélag sem Garðabær er aðili að og vinnur að innleiðingu á. En þar er rík áhersla lögð á að meta áhrif ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
39. fundur
Fyrir fundinum lá bréf frá Umboðsmanni barna dags. 28.01.2022 varðandi mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.
Markmið menningar- og safnanefndar og menningarfulltrúa varðandi þátttöku barna í menningarviðburðum í Garðabæ miðar ætíð að lýðræðislegri virkni barnanna, að börnin hafi raunveruleg áhrif á framkvæmda viðburða og að þeirra rödd heyrist. Hvort sem um er að ræða listsmiðjur, hönnunarsmiðjur eða tónleika eru börn ekki einungis njótendur eða hlustendur heldur líka virkir þátttakendur.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
07
2. fundur
Lagt er fram til kynningar og umræðu bréf frá umboðsmanni barna, dags. 28. jan. 2022 um mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og réttur barna til þátttöku og áhrif.
Mál nr. 2201561, mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og réttur barna til þátttöku og áhrif, lagt fram til kynningar og umræðu.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
08
38. fundur
Lagt fram til kynningar. Skólanefnd felur fræðsluskrifstofu að svara bréfi umboðsmanns barna og upplýsa um að í Garðabæ er starfandi ungmennaráð og að í endurskoðaðri menntastefnu er lögð áhersla á lýðræðislega aðkomu nemenda að skólastarfinu og starfsháttum sem efla gagnrýna hugsun meðal nemenda.
Leikskólanefnd Garðabæjar
09
30. fundur
Lagt fram til kynningar.
Leikskólanefnd felur fræðsluskrifstofu að svara bréfi umboðsmanns barna og upplýsa um að í Garðabæ er starfandi ungmennaráð og í endurskoðaðri menntastefnu er lögð áhersla á lýðræðislega aðkomu barna að skólastarfinu.
Bæjarráð Garðabæjar
10
5. (2012). fundur
Lagt fram og vísað til umfjöllunar nefnda bæjarins sem fjalla um málefni barna og ungmenna.