Bréf Minjastofnunar Íslands varðandi friðlýsingu Litlabæjarvarar 4, dags.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
48. (2006). fundur
Í bréfinu kemur fram að mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að friðlýsa ytra borð og frágang gólfs, lofts og veggja einbýlishússins að Litlabæjarvör 4 á Álftanesi í Garðabæ.
Friðlýsingarskjali verður þinglýst á eignina.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
13. (891). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Minjastofnunar Íslands að skilmálum um friðlýsingu einbýlishússins að Litlabæjarvör 4. Friðlýsingin tekur til ytra borðs og frágangs gólfs, lofts og veggja í stofurými og miðjugangi innan dyra." (Mál 2109350)
Bæjarráð Garðabæjar
03
38. (1996). fundur
Í umsögn skipulagsnefndar kemur fram að nefndin fagnar tillögu um friðlýsingu hússins.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti skilmála friðlýsingar hússins að Litlabæjarvör 4.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lagt fram erindi Minjastofnunar dags.10.september 2010 þar sem Garðabæ er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögu að friðlýsingu hússins að Litlubæjarvör 4.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við friðlýsingartillöguna sem ber að fagna. Nefndin óskar arkitektinum, húseigendum og Garðabæ til hamingju með heiðurinn.
Bæjarráð Garðabæjar
05
35. (1993). fundur
Í bréfinu er Garðabæ gefinn kostur á að koma á framfæri formlegum og efnislegum athugasemdum við tillögu að friðlýsingu hússins að Litlabæjarvör 4 og frestur veittur til 15. október nk.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.