Beint í efni

Samningur við Arnarland ehf. um gerð deiliskipulags og uppbyggingu á Arnarneshálsi.

Málsnúmer 2109359

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (891). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að samningi við Arnarland ehf. um deiliskipulag og uppbyggingu á norðanverðum Arnarneshálsi en landsvæðið er í eigu Arnarlands ehf.

Samningurinn er 17. gr. og hluti hans eru jafnframt 7 fylgiskjöl.

Baldur Ólafur Svavarsson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Bæjarstjórn heimilar Arnarlandi ehf. að hefja vinnu við undirbúning deiliskipulags með gerð skipulagslýsingar, sbr. 2. mgr. 38. gr skipulagslaga nr. 123/2010, sem fyrirhugað er að kynna í janúar 2022. Garðabær mun hefja undirbúning að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við hugmyndir samningsaðila um uppbyggingu landsins.

Bæjarráð Garðabæjar

02

38. (1996). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við forsvaramenn Arnarlands ehf. um uppbyggingu byggðar á norðanverðum Arnarneshálsi og fór nánar yfir einstök ákvæði samningsins um gerð deiliskipulags og uppbyggingu svæðisins.

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.