Beint í efni

Hönnun - Útboð - Búsetukjarni Brekkuási

Málsnúmer 2109051

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

2. fundur

Brekkuás 11 búsetukjarni fyrir fatlað fólk.

Lagt fram til kynningar og umræðu.

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (2031). fundur

Eftirfarandi tilboð lögð fram í framkvæmdir við- íbúðakjarna við Brekkuás.

Stéttafélagið ehf. kr. 445.764.310
Húsasmíði ehf. kr. 424.500.000
Gunnar Bjarnason ehf. kr. 390.006.711

Kostnaðaráætlun kr. 407.156.451

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gunnars Bjarnsonar ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (2011). fundur

Deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir samantekt um undirbúning, samráð og hönnun búsetukjarna við Brekkuás. Fram kom að verið er að vinna að gerð byggingarnefndarteikninga þar sem gert er ráð fyrir að í búsetukjarnanum verði 7 íbúðir. Á grundvelli samþykktrar byggingarnefndarteikninga verður unnið að gerð útboðsgagna og stefnt er að útboð verði auglýst sem fyrst.

Umræða var um málið.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Fyrir hönd Garðabæjarlistans fagna ég því að verið sé að ráðast í þessa uppbyggingu sem hefur verið á áætlun lengi og greinilegt að engu verður til sparað.
Hins vegar vek ég athygli á því að það er brýnt að rýna frekar þá þarfagreiningu sem liggur fyrir í víðtækara samráði en þegar hefur verið viðhaft.
Til þess að tryggja eins og kostur er framkvæmd þeirra ákvæða í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til sjálfstæðrar búsetu.
Ég gagnrýni það vinnulag sem viðhaft hefur verið þar sem nú þegar liggja fyrir teikningar eftir þarfagreiningu sem ekki hefur fengið neina umfjöllun hvorki í bæjarráði né í samráðsnefnd fatlaðs fólks fyrr en undirrituð kallaði sérstaklega eftir upplýsingum um þá greiningu sem fram hefur farið. Enn frekar þykir mér það miður að umdeild ákvörðun um 7 íbúða kjarna hafi verið tekin án þessa mikilvæga samráðs.
Þess utan leggur samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ríka áherslu á samráð við fatlað fólk sjálft og samtök fatlaðs fólks og því miður er ekki hægt að sjá þess merki í framlagðri þarfagreiningu að því hafi verið framfylgt.
Einnig er mikilvægt að hafa í huga að um varanleika húsnæðis er að ræða og mikilvægi þess að vanda vel til verka áður en farið er að setja fjármuni í uppbyggingu á húsnæði án þess samráðs sem sveitarfélaginu ber skylda til að framfylgja.“

Björg Fenger, bæjarfulltrúi var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu um málið.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

04

1. fundur

Mál nr. 2109051 tekið til umfjöllunar, Búsetukjarni Brekkuás 11, þarfagreining.

Mál nr. 2109051 tekið til umfjöllunnar. Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda og Anna Margrét Hauksdóttir, arkitekt sátu fundinni undir þessum lið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Umræða var um málið og góðar og gagnlegar ábendingar komu fram. Samráðshópurinn leggur til að frekari rýni fari fram í samráði við notendahópa.

Bæjarráð Garðabæjar

05

41. (199).. fundur

Ein umsókn barst í forvali vegna búsetukjarna í Brekkuási. Umsóknin uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðs og telst því ekki gild.
Bæjarráð samþykkir að hefja samningskaup án undangenginnar auglýsingar sbr. 39. gr. lið a í lögum um opinber innkaup 2016/120 og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins til að halda áfram með verkefnið.

Bæjarráð Garðabæjar

06

38. (1996). fundur

Lögð fram drög að forvalsgögnum vegna þátttöku í lokuðu útboði fyrirhugaðrar nýbyggingar íbúðakjarna fyrir fatlað fólk við Brekkuás 2.

Um er að ræða alútboð sem nær yfir alla hönnun þ.e.a.s. hönnunarstjórn, gerð aðaluppdrátta, deiliuppdrátta, lóðarteikninga sem og allra annara nauðsynlegra teikninga sem þarf í verkinu. Fullgera skal mannvirkið ásamt lóð og afhenda verkkaupa tilbúnu til innflutnings ásamt þvi að taka að sér byggingarstjórn á verktíma.

Ákveðnum fjölda umsækjenda sem standast kröfur forvalsins verður gefinn kostur á að gefa tilboð í verkefnið í fyrirhuguðu lokuðu útboði.

Bæjarráð samþykkir að unnið verði að því að fullgera gögn og auglýsa forval vegna alútboðs.

Bæjarráð Garðabæjar

07

33. (1991). fundur

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 2. september sl. var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis sem gerir ráð fyrir að byggður verði búsetukjarni fyrir fatlað fólk á lóðinni við Brekkuás 2.

Bæjarstjóri kynntu hugmynd um að láta fara fram alútboð vegna hönnunar og byggingar húsnæðis fyrir búsetukjarna á lóðinni.

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og verður útboðslýsing þegar hún liggur fyrir lögð fyrir bæjarráð.