1. fundur
1. fundur
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
28.01.2022
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður
- Elín Hoe Hinriksdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - forstöðumaður
- Hjörtfríður St Guðlaugsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2109051
01
Hönnun - Útboð - Búsetukjarni Brekkuási
Mál nr. 2109051 tekið til umfjöllunar, Búsetukjarni Brekkuás 11, þarfagreining.
Mál nr. 2109051 tekið til umfjöllunnar. Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda og Anna Margrét Hauksdóttir, arkitekt sátu fundinni undir þessum lið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Umræða var um málið og góðar og gagnlegar ábendingar komu fram. Samráðshópurinn leggur til að frekari rýni fari fram í samráði við notendahópa.
Málsnúmer 2201371
02
Öryggisbrestur - netárás
Mál nr. 2201371 tekið til umfjöllunar, netárás á kerfi Strætó.
Mál nr. 2201371 tekið til umfjöllunar, netárás á kerfi Strætó. Upplýst er um vinnslu og framvindu málsins og situr Sigríður Logadóttir, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi fundinn undir þessum lið og svarar fyrirspurnum fundarmanna. Samráðshópur telur mikilvægt að upplýsa notendur um slíkan öryggisbrest.
Málsnúmer 2201499
03
Næturþjónusta heimahjúkrunar
Mál nr. 2201499 tekið til umræðu, næturþjónusta heimahjúkrunar í Garðabæ.
Mál nr. 2201499 tekið til umræðu hjá samráðshóp um málefni fatlaðs fólks. Upplýst er að Garðabær sé ekki með samning við velferðarsvið Reykjavíkurborgar vegna næturþjónustu heimahjúkrunar, heldur sé þjónustan byggð á samningi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Sjúkratrygginga Íslands. Misbrestur er á samningi sjúkratrygginga Íslands við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hvað varðar næturþjónustu í Garðabæ.
Málsnúmer 2201500
04
Búsetu mál fyrir unga hreyfihamlaða einstaklinga
Mál nr. 2201500 búsetumöguleikar fyrir unga hreyfihamlaða einstaklinga lagt fram til umræðu.
Mál nr. 2201500 búsetumöguleikar fyrir unga hreyfihamlaða einstaklinga lagt fram til umræðu. Fundarmenn sammála um að til staðar þurfi að vera fjölbreyttari úrræði.
Málsnúmer 2201502
05
NPA námskeið Félagsmálaráðuneytisins
Mál nr. 2201502, NPA námskeið Félagsmálaráðuneytisins tekið til umfjöllunar.
Mál nr. 2201502, NPA námskeið Félagsmálaráðuneytisins tekið til umfjöllunar. Upplýst er um fyrirkomulag NPA námskeiðs sem boðið er upp á hjá Félagsmálaráðuneytinu fyrir notendur, aðstoðarfólk/aðstoðarverkstjórnendur og umsýsluaðila. Ábendingar um betrumbætur á framsetningu námsefnis hafa verið sendar til ráðuneytisins sem mun taka þær til greina.