Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða fyrir leikskóla og búsetukjarna.

Málsnúmer 2109351

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóða fyrir leikskóla og búsetukjarna. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðis til suðurs austan Vetrarbrautar á háholti Hnoðraholts að lokinni auglýsingu. Gert er ráð fyrir 7.292 m2 lóð fyrir leikskóla sem nefnist Haustbraut 1 og 3.143 m2 íbúðarlóð ælaðri búsetukjarna fyrir fatlaða nefnd Haustbraut 2. Ennfremur er gert ráð fyrir lóð fyrir fjarskiptamastur við Vorbraut sem fær númerið 6b.
Engar athugasemdir bárust við tillöguna.
Skipuagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

13. (891). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagsvæðisins til suðurs frá Vetrarbraut á háholti Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði lóð fyrir leikskóla og lóð fyrir íbúðakjarna fyrir fatlað fólk.
Bæjarstjórn samþykkir að fallið sé frá gerð lýsingar og forkynningu, sbr. heimild í 2. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga, þar sem allar meginforsendur fyrir tillögunni liggja fyrir í aðalskipulagi." (Mál nr. 2109351)

Bæjarráð Garðabæjar

04

38. (1996). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðrholts sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagsvæðisins til suðurs frá Vetrarbraut á háholti Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði lóð fyrir leikskóla og lóð fyrir íbúðakjarna fyrir fatlað fólk.

Skipulagsnefnd leggur til að fallið sé frá gerð lýsingar og forkynningu, sbr. heimild í 2. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga, þar sem allar meginforsendur fyrir tillögunni liggja fyrir í aðalskipulagi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðis til suðurs austan Vetrarbrautar á háholti Hnoðraholts.
Gert er ráð fyrir 7.292 m2 lóð fyrir leikskóla sem nefnist Haustbraut 1 og 3.143 m2 íbúðarlóð ælaðri búsetukjarna fyrir fatlaða nefnd Haustbraut 2.
Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 m.s.br.
Þar sem að breytingartillagan er að fullu í samræmi við aðalskipulag fellur skipulagsnefnd frá gerð lýsingar í samræmi við 2.mgr.40.gr.Skipulagslaga og frá forkynningu í samræmi við 3.mgr.sömu greinar.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.greinar sömu laga. Senda skal dreifibréf í hús í Hnoðraholti þar sem athygli er vakin á auglýsingunni.