Sunnuflöt 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
47. (2005). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigrúnu Bender, kt. 151185-4019, leyfi til að byggja skýli á lóðinni að Sunnuflöt 24.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
12. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagi deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Sunnuflöt 24 að lokinni grenndarkynningu. Frestur til að skila inn athugasemdum rann út 22.október. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
9. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vestur fyrir opið skýli í sömu hæð og neðri hæð hússins. Þak skýlisins verður þakið torfi, útveggir á þrjá vegu, plata og þak og steinsteypu. Skýlið opnast inn í byggingarreit en nær um 1,2 m út fyrir byggingarreit til vesturs.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr,123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Sunnuflatar 21,22,23 og 26.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.