Beint í efni

Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs - Keldugata 4-10

Málsnúmer 2108365

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn um tillögu að gerð stoðveggjar á efri hluta lóðar sem liggur að Holtsvegi og um frávik frá kröfu um innskot við bílageymslur. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunar um umsókn um byggingarleyfi þar sem fallist er á umrædd atriði.
Fyrir hönd Garðabæjar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við gerð og legu stoðveggjar eins og teikningar sýna.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.