Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (956). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 24. febrúar 2025 að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarnesháls (3.37 VÞ) að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði. Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkun reitsins sem er 8,9 ha að stærð breytist úr því að vera svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ) í miðsvæði (M). Merking reitsins verður 3.37 M í stað 3.37 VÞ. Tillagan gerir ráð fyrir því að innan reitsins verði blönduð byggð íbúða, verslunar og þjónustu með áherslu á heilsutengda starfsemi en núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir byggð með megináherslu á atvinnurekstur, verslun og þjónustu, þar sem hámarkshæð bygginga er 8 hæðir. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð bygginga breytist úr 8 hæðum í 2 til 6 hæðir. Ein bygging ætluð atvinnustarfsemi, kennileitisbygging, geti orðið allt að 7 hæðir. Gert er ráð fyrir að hæstu byggingar séu næst Hafnarfjarðarvegi. Tillagan var í auglýsingu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en athugasemdafrestur var framlengdur um 10 daga. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim. Lagðar fram greiningar á skuggavarpi sem fyrirhuguð byggð myndar. Skuggavarpsgreiningar voru unnar af skipulagsráðgjafa verkefnisins en einnig var utanaðkomandi ráðgjafi fenginn til að vinna frekari greiningu. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagsáætlanir hafa, allt frá því að þær birtust fyrst í aðalskipulagi Garðabæjar 1985-2005, gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á þessum reit. Fyrst var stefnt að blandaðri byggð sem gerði ráð fyrir verslun, iðnaði, stofnunum og íbúðum en í gildandi aðalskipulagi sem tók gildi árið 2017 er gert ráð fyrir þéttri byggð með megináherslu á atvinnurekstur, verslun og þjónustu og hámarkshæð allt að 8 hæðum. Ástæða þess að skipulagsáætlanir sáu fyrir sér þessa tegund landnotkunar var ákjósanleg lega og miðlæg staðsetning svæðisins, m.a. með tilliti til samgangna og sýnileika. Stefna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins styður þá stefnu sem Garðabær hefur haft um uppbyggingu svæðisins og skiptir þá lega þess við þann samgöngu og þróunarás sem liggur um Hafnarfjarðarveg miklu máli. Sú lega var meginforsenda þess að þéttbýli myndaðist í Garðabæ um miðbik síðustu aldar. Deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hefur verið samhliða þessari tillögu miðar að sama skapi að því að byggðin verði samgöngumiðuð og taki tillit til fjölbreyttra samgöngumáta. Sú breyting sem auglýst tillaga gerir ráð fyrir miðast að því að draga verulega úr þéttleika og hámarkshæð byggðar, sem ákvæði hefðu getað heimilað samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Einnig er sú breyting gerð á tillögunni, sem hafði bæði verið forkynnt og auglýst áður, að undirgöng fyrir akandi og gangandi umferð færast til austurs, frá fjölbýlishúsinu að Hofakri. Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Arnarland og hefur vísað þeim til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú vinna er komin af stað. Umferðargreiningar og spár sýna fram á að álag muni aukast hvort sem að Arnarland byggist eða ekki og mikilvægt að áætlanir taki tillit til þess þannig að ráðist verði í framkvæmdir tímanlega. Í síðasta mánuði var samþykkt viljayfirlýsing Kópavogs og Garðabæjar um endurskoðun á sveitarfélagsmörkum á Arnarneshálsi og umferðarbætandi aðgerðir og fagnar skipulagsnefnd því samkomulagi. Skuggavarpsgreiningar sýna að áhrif skuggavarps á aðliggjandi byggð er minniháttar. Við mat á þeim atriðum sem athugasemdir og umsagnir lúta að er ástæða til þess að taka tillit til þess að tillagan hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu stigum í meðförum skipulagsnefndar. Þar höfðu ábendingar um skuggavarp og útsýni áhrif. Skipulagsnefnd telur að þátttaka íbúa, sérstaklega þeirra sem búa nærri svæðinu hafi haft góð áhrif á tillöguna. Til þess að koma enn frekar til móts við athugasemdir sem varða innsýn og skuggavarp húsa við Súlunes sem og ásýnd svæðisins leggur skipulagsnefnd til að eftirfarandi setningu verði bætt við sem skipulagsákvæði: “Húshlutar hærri en 3 hæðir skulu ekki vera nær lóðarmörkum meðfram Hafnarfjarðarvegi en 12 metrar." Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða greinargerð.
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (2156). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 24. febrúar 2025 að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarnesháls (3.37 VÞ) að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði. Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkun reitsins sem er 8,9 ha að stærð breytist úr því að vera svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ) í miðsvæði (M). Merking reitsins verður 3.37 M í stað 3.37 VÞ. Tillagan gerir ráð fyrir því að innan reitsins verði blönduð byggð íbúða, verslunar og þjónustu með áherslu á heilsutengda starfsemi en núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir byggð með megináherslu á atvinnurekstur, verslun og þjónustu, þar sem hámarkshæð bygginga er 8 hæðir. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð bygginga breytist úr 8 hæðum í 2 til 6 hæðir. Ein bygging ætluð atvinnustarfsemi, kennileitisbygging, geti orðið allt að 7 hæðir. Gert er ráð fyrir að hæstu byggingar séu næst Hafnarfjarðarvegi. Tillagan var í auglýsingu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en athugasemdafrestur var framlengdur um 10 daga. Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim. Lagðar fram greiningar á skuggavarpi sem fyrirhuguð byggð myndar. Skuggavarpsgreiningar voru unnar af skipulagsráðgjafa verkefnisins en einnig var utanaðkomandi ráðgjafi fenginn til að vinna frekari greiningu. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagsáætlanir hafa, allt frá því að þær birtust fyrst í aðalskipulagi Garðabæjar 1985-2005, gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á þessum reit. Fyrst var stefnt að blandaðri byggð sem gerði ráð fyrir verslun, iðnaði, stofnunum og íbúðum en í gildandi aðalskipulagi sem tók gildi árið 2017 er gert ráð fyrir þéttri byggð með megináherslu á atvinnurekstur, verslun og þjónustu og hámarkshæð allt að 8 hæðum. Ástæða þess að skipulagsáætlanir sáu fyrir sér þessa tegund landnotkunar var ákjósanleg lega og miðlæg staðsetning svæðisins, m.a. með tilliti til samgangna og sýnileika. Stefna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins styður þá stefnu sem Garðabær hefur haft um uppbyggingu svæðisins og skiptir þá lega þess við þann samgöngu og þróunarás sem liggur um Hafnarfjarðarveg miklu máli. Sú lega var meginforsenda þess að þéttbýli myndaðist í Garðabæ um miðbik síðustu aldar. Deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hefur verið samhliða þessari tillögu miðar að sama skapi að því að byggðin verði samgöngumiðuð og taki tillit til fjölbreyttra samgöngumáta. Sú breyting sem auglýst tillaga gerir ráð fyrir miðast að því að draga verulega úr þéttleika og hámarkshæð byggðar, sem ákvæði hefðu getað heimilað samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Einnig er sú breyting gerð á tillögunni, sem hafði bæði verið forkynnt og auglýst áður, að undirgöng fyrir akandi og gangandi umferð færast til austurs, frá fjölbýlishúsinu að Hofakri. Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Arnarland og hefur vísað þeim til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú vinna er komin af stað. Umferðargreiningar og spár sýna fram á að álag muni aukast hvort sem að Arnarland byggist eða ekki og mikilvægt að áætlanir taki tillit til þess þannig að ráðist verði í framkvæmdir tímanlega. Í síðasta mánuði var samþykkt viljayfirlýsing Kópavogs og Garðabæjar um endurskoðun á sveitarfélagsmörkum á Arnarneshálsi og umferðarbætandi aðgerðir og fagnar skipulagsnefnd því samkomulagi. Skuggavarpsgreiningar sýna að áhrif skuggavarps á aðliggjandi byggð er minniháttar. Við mat á þeim atriðum sem athugasemdir og umsagnir lúta að er ástæða til þess að taka tillit til þess að tillagan hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu stigum í meðförum skipulagsnefndar. Þar höfðu ábendingar um skuggavarp og útsýni áhrif. Skipulagsnefnd telur að þátttaka íbúa, sérstaklega þeirra sem búa nærri svæðinu hafi haft góð áhrif á tillöguna. Til þess að koma enn frekar til móts við athugasemdir sem varða innsýn og skuggavarp húsa við Súlunes sem og ásýnd svæðisins leggur skipulagsnefnd til að eftirfarandi setningu verði bætt við sem skipulagsákvæði: “Húshlutar hærri en 3 hæðir skulu ekki vera nær lóðarmörkum meðfram Hafnarfjarðarvegi en 12 metrar." Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða greinargerð.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarnesháls (3.37 VÞ) að lokinni auglýsingu og úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkun reitsins sem er 8,9 ha að stærð breytist úr því að vera svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ) í miðsvæði (M). Merking reitsins verður 3.37 M í stað 3.37 VÞ.
Tillagan gerir ráð fyrir því að innan reitsins verði blönduð byggð íbúða, verslunar og þjónustu með áherslu á heilsutengda starfsemi en núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir byggð með megináherslu á atvinnurekstur, verslun og þjónustu, þar sem hámarkshæð bygginga er 8 hæðir.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð bygginga breytist úr 8 hæðum í 2 til 6 hæðir. Ein bygging ætluð atvinnustarfsemi, kennileitisbygging, geti orðið allt að 7 hæðir. Gert er ráð fyrir að hæstu byggingar séu næst Hafnarfjarðarvegi.
Tillagan var í auglýsingu frá 28. nóvember 2024 til 20. janúar 2025 en athugasemdafrestur var framlengdur um 10 daga.
Lagðar fram þær athugasemdir og umsagnir sem bárust ásamt greiningum á þeim.
Lagðar fram greiningar á skuggavarpi sem fyrirhuguð byggð myndar. Skuggavarpsgreiningar voru unnar af skipulagsráðgjafa verkefnisins en einnig var utanaðkomandi ráðgjafi fenginn til að vinna frekari greiningu.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að skipulagsáætlanir hafa, allt frá því að þær birtust fyrst í aðalskipulagi Garðabæjar 1985-2005, gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á þessum reit. Fyrst var stefnt að blandaðri byggð sem gerði ráð fyrir verslun, iðnaði, stofnunum og íbúðum en í gildandi aðalskipulagi sem tók gildi árið 2017 er gert ráð fyrir þéttri byggð með megináherslu á atvinnurekstur, verslun og þjónustu og hámarkshæð allt að 8 hæðum. Ástæða þess að skipulagsáætlanir sáu fyrir sér þessa tegund landnotkunar var ákjósanleg lega og miðlæg staðsetning svæðisins, m.a. með tilliti til samgangna og sýnileika.
Stefna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins styður þá stefnu sem Garðabær hefur haft um uppbyggingu svæðisins og skiptir þá lega þess við þann samgöngu og þróunarás sem liggur um Hafnarfjarðarveg miklu máli. Sú lega var meginforsenda þess að þéttbýli myndaðist í Garðabæ um miðbik síðustu aldar. Deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hefur verið samhliða þessari tillögu miðar að sama skapi að því að byggðin verði samgöngumiðuð og taki tillit til fjölbreyttra samgöngumáta.
Sú breyting sem auglýst tillaga gerir ráð fyrir miðast að því að draga verulega úr þéttleika og hámarkshæð byggðar, sem ákvæði hefðu getað heimilað samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Einnig er sú breyting gerð á tillögunni, sem hafði bæði verið forkynnt og auglýst áður, að undirgöng fyrir akandi og gangandi umferð færast til austurs, frá fjölbýlishúsinu að Hofakri.
Skipulagsnefnd telur fulla ástæðu til að taka þær áhyggjur alvarlega sem fram koma í athugasemdum og ábendingum um öryggi og flæði akandi umferðar umhverfis Arnarland og hefur vísað þeim til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Arnarnesveg en sú vinna er komin af stað. Umferðargreiningar og spár sýna fram á að álag muni aukast hvort sem að Arnarland byggist eða ekki og mikilvægt að áætlanir taki tillit til þess þannig að ráðist verði í framkvæmdir tímanlega.
Í síðasta mánuði var samþykkt viljayfirlýsing Kópavogs og Garðabæjar um endurskoðun á sveitarfélagsmörkum á Arnarneshálsi og umferðarbætandi aðgerðir og fagnar skipulagsnefnd því samkomulagi.
Skuggavarpsgreiningar sýna að áhrif skuggavarps á aðliggjandi byggð er minniháttar. Við mat á þeim atriðum sem athugasemdir og umsagnir lúta að er ástæða til þess að taka tillit til þess að tillagan hefur tekið miklum breytingum frá fyrstu stigum í meðförum skipulagsnefndar. Þar höfðu ábendingar um skuggavarp og útsýni áhrif. Skipulagsnefnd telur að þátttaka íbúa, sérstaklega þeirra sem búa nærri svæðinu hafi haft góð áhrif á tillöguna.
Til þess að koma enn frekar til móts við athugasemdir sem varða innsýn og skuggavarp húsa við Súlunes sem og ásýnd svæðisins leggur skipulagsnefnd til að eftirfarandi setningu verði bætt við sem skipulagsákvæði: “Húshlutar hærri en 3 hæðir skulu ekki vera nær lóðarmörkum meðfram Hafnarfjarðarvegi en 12 metrar.?
Með vísan í þau atriði sem hér eru tilgreind og framlögð gögn samþykkir skipulagsnefnd tillöguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lögð fram greinargerð skipulagsstjóra þar sem að athugasemdum sem borist hafa er svarað lið fyrir lið. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, sem nær til landnotkunarreitsins Arnarnesháls og nær því til sama svæðis og tillaga að deiliskipulagi Arnarlands, ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Lögð fram greining á innihaldi athugasemda og umsagna.
Umhverfissviði falið að vinn drög að svörum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til landnotkunarreitsins Arnarneshálss (Arnarlands) að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024, varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarnesháls og nær því til sama svæðis og tillaga að deiliskipulagi Arnarlands. Tillögu að breyttri tillögu að deiliskipulagi Arnarlands var vísað til auglýsingar á nýjan leik og kallaði hún á breytingu á tillögu að breytingu aðalskipulags. Þær breytingar sem gerðar hafa verið frá áður auglýstri breytingartillögu eru eftirfarandi: -Tákn um undirgöng undir Arnarnesveg færast austar á uppdrætti til samræmis við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og tillögu að breytingu deiliskipulags Akra. -Ákvæði um hæðafjölda breytast, verða nú 2-6 hæðir í stað 3-6 og hæð kennisleitisbyggingar allt að 7 hæðir í stað 8. -Lega stofnstíga breytast innan svæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Arnarlands. Þar sem að breytingar á tillögunni eru óverulegar frá áður auglýstri tillögu taldi skipulagsnefnd að heimild Skipulagsstofnunar til auglýsingar tillögunnar sé enn í gildi. Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.31.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
07
43. (2144). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024, varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarnesháls og nær því til sama svæðis og tillaga að deiliskipulagi Arnarlands.
Tillögu að breyttri tillögu að deiliskipulagi Arnarlands var vísað til auglýsingar á nýjan leik og kallaði hún á breytingu á tillögu að breytingu aðalskipulags.
Þær breytingar sem gerðar hafa verið frá áður auglýstri breytingartillögu eru eftirfarandi:
-Tákn um undirgöng undir Arnarnesveg færast austar á uppdrætti til samræmis við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og tillögu að breytingu deiliskipulags Akra.
-Ákvæði um hæðafjölda breytast, verða nú 2-6 hæðir í stað 3-6 og hæð kennisleitisbyggingar allt að 7 hæðir í stað 8.
-Lega stofnstíga breytast innan svæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.
Þar sem að breytingar á tillögunni eru óverulegar frá áður auglýstri tillögu taldi skipulagsnefnd að heimild Skipulagsstofnunar til auglýsingar tillögunnar sé enn í gildi.
Skipulagsnefnd vísaði breytingartillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.31.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarneshálss og nær því til sama svæðis og tillaga að deiliskipulagi Arnarlands.
Jóhanna Helgadóttir kynnti tillöguna en auk hennar voru Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur, Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt viðstödd fundinn undir þessum lið.
Tillögu að breyttri tillögu að deiliskipulagi Arnarlands hefur verið vísð til auglýsingar á nýjan leik og kallar hún á breytingu á tillögu að breytingu aðalskipulags,
Þær breytingar sem gerðar hafa verið frá áður auglýstri breytingartillögu eru eftirfarandi:
-Tákn um undirgöng undir Arnarnesveg færast austar á uppdrætti til samræmis við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og tillögu að breytingu deiliskipulags Akra.
-Ákvæði um hæðafjölda breytast, verða nú 2-6 hæðir í stað 3-6 og hæð kennisleitisbyggingar allt að 7 hæðir í stað 8.
-Lega stofnstíga breytast innan svæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.
Þar sem að breytingar á tillögunni eru óverulegar frá áður auglýstri tillögu telur skipulagsnefnd að heimild Skipulagsstofnunar til auglýsingar tillögunnar sé enn í gildi.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.31.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
14. fundur
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic kynnti þær aðal- og deiliskipulagstillögur sem eru í mótun og ganga til móts við þær athugasemdir sem bárust í auglýsingarferli. Tillögur taka það miklum breytingum að nauðsynlegt verður að auglýsa þær að nýju.
Tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands mun þó breytast óverulega en tákn fyrir undirgöng undir Arnarnesveg færist austar og ákvæði um hæðafjölda kennisleitisbyggingar lækkar úr 8 hæðum í 7.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
13. fundur
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu nefndinni grein fyrir þeirri vinnu sem átt hefur sér stað á tillögunni í ljósi þeirra athugasemda sem bárust við auglýsta tillögu.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði, skipulagsráðgjafa og þróunaraðila.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Arnarneshálss/Arnarlands að lokinni auglýsingu.
Athugsemdir og umsagnir sem bárust innan tilskilins frests lagðar fram.
Tillögu og framlögðum gögnum vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
14
9. (942). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til svæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (3.37 VÞ).
Tillaga hefur verið kynnt Skipulagsstofnun og fyrir liggur að stofnunin gerir ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst samkvæmt 31. gr. enda verði brugðist við athugasemdum við tilgreind atriði. Tillagan hefur verið yfirfarin og breytt til samræmis við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi fyrir sama svæði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
15
9. (942). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til svæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (3.37 VÞ).
Tillaga hefur verið kynnt Skipulagsstofnun og fyrir liggur að stofnunin gerir ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst samkvæmt 31. gr. enda verði brugðist við athugasemdum við tilgreind atriði. Tillagan hefur verið yfirfarin og breytt til samræmis við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi fyrir sama svæði.
Bæjarráð Garðabæjar
16
21. (2122). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til svæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (3.37 VÞ).
Tillaga hefur verið kynnt Skipulagsstofnun og fyrir liggur að stofnunin gerir ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst samkvæmt 31. gr. enda verði brugðist við athugasemdum við tilgreind atriði. Tillagan hefur verið yfirfarin og breytt til samræmis við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi fyrir sama svæði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
17
7. fundur
Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 10. maí sl. þar sem fram kemur að stofnunin geri ekki athugasemd við að tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nái til Arnarlands (Arnarnesháls) verði auglýst þegar brugðist hafi verið við ákveðnum atriðum sem fram koma í erindinu.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi hans og skipulagsráðgjafa með Skipulagsstofnun, þar sem lagðar voru fram hugmyndir að því með hvaða hætti mætti bregðast við þeim ábendingum sem stofnunin gerði.
Lögð fram tillaga að breytingum á ákvæðum tillögunnar sem koma til móts við ábendingar stofnunarinnar og eru í samræmi við þá deiliskipulagstillögu sem lögð er fyrir fundinn.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa breytingartillögunni með þeim breytingum sem lagðar eru til auglýsingar í samræmi við 31.gr.skipulagslaga 123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.
Bæjarstjórn Garðabæjar
18
5. (938). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til landsvæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (Arnarland). Áður en tillagan er auglýst skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.“ (Mál nr. 2110128)
Bæjarráð Garðabæjar
19
11. (2112). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til landsvæðis á norðanverðum Arnarneshálsi (Arnarland). Áður en tillagan er auglýst skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til svonefnds Arnarlands norðan Arnarnesvegar og austan Hafnarfjarðarvegar.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkun svæðisins breytist úr því að vera svæði fyrir verslun og þjónustu í miðsvæði. Ennfremur er gert ráð fyrir því að Borgarlína liggi um landnotkunarreitinn frá Arnarnesvegi að bæjarmörkum við Kópavog. Nákvæm lega Borgarlínu innan reitsins er ekki skilgreind enda er það viðfangsefni deiliskipulags sem er í mótun.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 3.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóra falið að senda tillögunni til athugunar hjá Skipulagsstofnun.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem nær til sama svæðis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
12. fundur
Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa í forkynningu tillögu að breytingu aðalskipulags og að deiliskipulagi Arnarlands.
Almennur kynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 31.ágúst og var hann vel sóttur. Að loknum kynningarfundi óskuðu íbúar í Akrahverfi eftir því að boðað yrði til annars kynningarfundar og var orðið við því. Frestur til að skila inn ábendingum var framlengdur um viku eða til 2.október. Aukakynningarfundur var haldinn í Sveinatungu þann 20.september og var hann sömuleiðis vel sóttur. Fundargerðir beggja funda lagðar fram.
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic gerði grein fyrir samantekt um innihald ábendinga sem borist hafa.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að umhverfissvið og skipulagsráðgjafi skoði vandlega útfærslu umferðartenginga og flæðis umhverfis skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina og Kópavogsbæ.
Ábendingum, umsögnum og fundargerðum vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
22
9. (924). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um forkynningu samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi svæði Arnarlands. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. Samhliða skal kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir Arnarland.“ (Mál nr. 2110128)
Bæjarráð Garðabæjar
23
23. (2076). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja forkynningu á tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar varðandi svæði Arnarlands. Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. Samhliða skal kynna tillögu að deiliskipulagi fyrir Arnarland.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
24
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að landnotkunarreitur 3.37 Arnarnesháls breytist úr Verslun-og þjónusta (Vþ) í miðsvæði (M) til að rúma blandaða byggð íbúða, atvinnu, skrifstofa, verslunar og þjónustu. Skipulagsnefnd leggur til að ákvæðum aðalskipulags um hámarkshæð húsa á reitnum verði breytt úr 8 í 3-6 hæðir en ein kennileitisbygging ofarlega á svæðinu geti orðið allt að 9 hæðir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Hún skal forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi sama svæðis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
25
3. fundur
Jóhanna Helgadóttir arkitekt hjá Nordic arkitektum og Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur hjá VSB-verkfræðingum fóru yfir umferðargreiningar og aðrar forsendur skipulagsmótunar á svæðinu.
Vísað til úrvinnslu hjá ráðgjöfum og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
26
1. fundur
Lögð fram skipulagslýsing fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulag Arnarlands ásamt umsögnum sem borist hafa í kynningu hennar.
Jóhanna Helgadóttir skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram við mótun tillögunnar síðan að lýsing var kynnt. Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur fór yfir forsendur samgangna og þau verkefni sem staðið er frammi fyrir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi mótunar og leggur áherslu á gott samráð og samvinnu við Kópavogsbæ.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
27
4. fundur
Lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa vegna verkefnislýsingar sem auglýst hefur verið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
28
2. (898). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum (BF,ÁHJ,SHJ,GS,GVG,JS,SS,GE,BÓS) gegn tveimur (ÞÞ,GHÁ) tillögu skipulagsnefndar að kynna almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á Arnarneshálsi. (Svæði 3.37 VÞ) (Mál nr. 2110128)
Bæjarráð Garðabæjar
29
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis á Arnarneshálsi. (Svæði 3.37 VÞ)
Skipulagsnefnd Garðabæjar
30
2. fundur
Lögð fram skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir Arnarland (Arnarnesháls).
Landnotkun í gildandi aðalskipulagi verður breytt úr verslun og þjónusta (Vþ) í miðsvæði (M) til þess að rúma blandaða byggð atvinnu, skrifstofa og íbúða.
Jóhanna Helgadóttir hjá Arkþing og Þorgerður Einarsdóttir hjá Stefni kynntu lýsinguna.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd beinir því til tækni- og umhverfissviðs og landeiganda að halda áfram samráði við Kópavogsbæ um skipulag á sveitarfélagamörkum með sérstakri áherslu á greiðar og fjölbreyttar samgöngur og vistvænt umhverfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
31
12. fundur
Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Hálfdán Gunnarsson hjá Ósum ehf kynnti áform vegna uppbyggingar á óbyggðu svæði í norðanverðum Arnarneshálsi/Arnarnesholti sem hlotið hefur vinnuheitið Arnarland. Gert er ráð fyrir að áformin kalli á breytingu aðalskipulags.