Stofn- og samgöngustígur á Arnarnesi. Breyting á deiliskipulagi Arnarness
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (897). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna breytingar á skilgreiningu á stofnstíg. Tillagan gerir ráð fyrir að stígur meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Arnarneslæk, um væntanleg undirgöng á Arnarneshæð og að Kópavogslæk verði skilgreindur sem samgöngustígur með aðgreindri umferð hjólreiða og gangandi vegfarenda. Breidd samgöngustígs getur verið allt að 2x3 metrar með raflýsingu. (Mál nr. 2201071)
Bæjarráð Garðabæjar
02
1. (2008). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna breytingar á skilgreiningu á stofnstíg. Tillagan gerir ráð fyrir að stígur meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Arnarneslæk, um væntanleg undirgögn á Arnarneshæð og að Kópavogslæk verði skilgreindur sem samgöngustígur með aðgreindri umferð hjólreiða og gangandi vegfarenda. Breidd samgöngustígs getur verið allt að 2x3 metrar með raflýsingu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir því að stofnstígur meðfram Hafnarfjarðarvegi verði skilgreindur sem samgöngustígur með aðgreindri umferð hjólreiða annarsvegar og gangandi hinsvegar. Breidd samgöngustígs geti verið allt að 2 x 3 m breiður með raflýsingu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.