Beint í efni

Tengistöð ljósleiðara í Vetrarmýri. Vetrarmýri deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2112037

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (897). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna skiptingar lóðar á svæðinu fyrir dælu- og dreifistöð í tvær lóðir. Samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins. (Mál nr. 2112037)

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (2008). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar vegna skiptingar lóðar á svæðinu fyrir dælu- og dreifistöð í tvær lóðir. Samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að lóðin Vetrarbraut 15 sem ætluð er fyrir dælustöð skiptist í tvær lóðir.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.