Beint í efni

Hraunhólar 14 - fyrirspurn um deiliskipulag o.fl.

Málsnúmer 1604105

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (897). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar við Hraunhóla 14 á skipulagsuppdrætti en lóðin er eignarlóð. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Hraunhóla. (Mál nr. 1604105)

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (2008). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar við Hraunhóla 14 á skipulagsuppdrætti en lóðin er eignarlóð. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum við Hraunhóla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram ósk lóðarhafa Hraunhóla númer 14 um deiliskipulagsbreytingu sem geri ráð fyrir því að lóðin í deiliskiplagi nái eins langt til suðurs og aðliggjandi lóð nr. 12. Allar lóðir nema nr. 14 og 16 ná jafn langt til suðurs í deiliskipulagi.
Samkvæmt þinglýstum gögnum nær landareign lóðar nr.14 100 metra frá götu til suðurs.
Fasteignaskráning lóðar nr.16 gerir ráð fyrir að lóðin nái jafnlangt til suðurs og hinar lóðirnar.
Ekki liggur fyrir skýring þess af hverju deiliskipulag gerði ekki ráð fyrir að lóðir nr.14 og nr.16 nái ekki jafn langt til suðurs og aðrar lóðir.
Skipulagsnefnd metur tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að lóðir nr.14 og 16 nái jafn langt til suðurs og aðrar lóðir við Hraunhóla sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr.sömu laga. Byggingarreitur stækki til suðurs til samræmis við aðrar lóðir. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum við Hraunhóla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

13. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa Hraunhóla 14 um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að suðurmörk og byggingarreitur lóðar sé í samræmi við aðrar lóðir við Hraunhóla.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

7. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

6. fundur

Lögð fram fyrirspurn fyrir hönd lóðarhafa um stærð lóðar í deiliskipulagi og fleira. Fyrirspurn vísað til mótunar tillögu um breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem nær til lóða sunnan við Hraunhóla. Skoða skal hvort skynsamlegt sé að stækka lóðina í átt að hraunjaðri og hvort skipta megi henni upp í tvær einbýlishúsalóðir.