Beint í efni

Kauptún 4. Deiliskipulagsbreyting Kauptúns.

Málsnúmer 2109356

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (904). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

7. (903). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna aukningar á byggingarmagni og stækkun lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan var auglýst og liggja fyrir umsagnir umsagnaraðila. Í tillögunni felst að lóðin stækkar til vesturs um 16.866 m². Byggingarreitur stækkar til vesturs og hámarksbyggingamagn á lóð eykst úr 22.500 m² í 35.500 m². Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu sem er óbreytt, þ.e. 1 stæði fyrir hverja 30 m².
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2109356)

Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

16. (2023). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna aukningar á byggingarmagni og stækkun lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan var auglýst og liggja fyrir umsagnir umsagnaraðila. Í tillögunni felst að lóðin stækkar til vesturs um 16.866 m². Byggingarreitur stækkar til vesturs og hámarksbyggingamagn á lóð eykst úr 22.500 m² í 35.500 m². Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu sem er óbreytt, þ.e. 1 stæði fyrir hverja 30 m².
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún nr.4 (IKEA) að lokinni auglýsingu samkvæmt 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Aðalsteinn Snorrason arkitekt hjá Arkís var viðstaddur þennan fundarlið og svaraði spurningum nefndarmanna.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að færa alla starfsemi IKEA að Kauptúni 4 og koma öllu lagerhaldi á einn stað til hagræðingar
og þjónustuaukningar.
Til þess að svo megi verða þarf að koma til lóðarstækkun og aukið byggingarmagn á lóðina Kauptún 4.
Lóðin Kauptún 4 stækkar til vesturs um 16.866 m². Lóðastærð fyrir breytingu er 56.403 m² en verður eftir breytingu 73.269 m².
Byggingarreitur stækkar til vesturs.
Skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir útigeymslu og spennistöð milli núverandi húss og Reykjanesbrautar.
Reitur T2-fjarskiptabúnaður færist til.
Hámarksbyggingamagn á lóð eykst úr 22.500 m² í 35.500 m².
Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu sem er óbreytt, þ.e. 1 stæði fyrir hverja 30 m².
Heimilt er að áfangaskipta uppbyggingu bílastæða í samræmi við bílastæðaþörf.
Bílastæði milli IKEA og Reykjanesbrautar verði grasstæði.
Þar sem kvöð er um aðgang slökkviliðs á grasstæðum verði akbraut malbikuð.
Lagðar fram umsagnir sem borist hafa og kalla þær ekki á breytingar á tillögunni. Umhverfisstofnun bendir á í umsögn sinna að röskun á hrauni falli undir a.lið 2.mgr.61.gr.laga nr.60/2013 um náttúruvernd og skal því forðast röskunina nema brýna nauðsyn beri til. Skipulagsnefnd metur nauðsyn þess að stækka verslunarhúsnæði stærstu húsgagna- og híbýlaprýðisverslunar landsins brýna og verður ekki séð að aðrir kostir séu í stöðunni. Auk þess er svæðið sem stækkunin nær til skilgreint fyrir verslun-og þjónustu í gildandi aðalskipulagi.
Lögð fram greinargerð umsækjanda sem er sett fram sem athugasemd við breytingartillöguna. Greinargerðin lítur að skilgreiningum á lokunarflokkum byggingarinnar, þ.e. A-rýmum og B-rýmum, í deiliskipulaginu. Skipulagshöfundar telja rétt að hnykkja á þessu atriði með einfaldri setningu í lok kafla 7.5.1 í þeirri deiliskipulagsbreytingu sem nú hefur verið kynnt og hljóði svo:
"B-rými sem myndast undir útkrögunum efri hæðar við vörumóttökur og innganga teljast ekki til heildarflatarmáls bygginga né heldur B-rými undir nauðsynlegum skyggnum við innganga."
Færð eru frekari rök fyrir breytingartillögunni í framlagðri greinargerð.
Skipulagsnefnd fellst á rök deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Kauptúns í samræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindri breytingu í greinargerð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 og nágrennis að lokinni auglýsingu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

1. (897). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 16.866 m2 eða úr 56.403 m2 í 73.269 m2. Hámarksbyggingarmagn eykst úr 22.500 m2 í 35.000 m2 (Mál nr. 2109356)

Ingvar Arnarson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

07

1. (2008). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 16.866 m2 eða úr 56.403 m2 í 73.269 m2. Hámarks byggingarmagn eykst úr 22.500 m2 í 35.000 m2

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

1. fundur

Aðalsteinn Snorrason og Edda Einarsdóttir arkitektar hjá Arkís og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi kynntu tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptún 4 til vesturs ásamt stækkun byggingarreits.
Lóðin stækkar til vesturs um 16.866 m2, er fyrir breytingu 56.403 m2 en verður 73.269 m2 eftir breytingu. Hámarksbyggingarmagn á lóð eykst úr 22.500 í 35.000 m2. Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu deiliskipulagsins sem 1 stæði fyrir hverja 30 m2. Heimilt verður að áfangaskipta uppbyggingu bílastæða í samræmi við bílastæðaþörf.
Tillagan er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Jákvæð umsögn Urriðaholts ehf og rekstrarfélags Kauptúns um breytingartillöguna liggur fyrir. Tillagan hefur verið kynnt fyrir Vegagerðinni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Afla skal umsagna umsagnaraðila.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

11. fundur

Lögð fram drög að tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 (IKEA).
Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Afla skal umsagna hjá deiliskipulagshöfundi, Urriðaholti ehf, Rekstrarfélagi Kauptúns og Vegagerðinni.