4. fundur
4. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
24.05.2022
Kl. 17:00 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Holtstún - grenndarkynning á byggingarleyfi
Lögð fam tillaga að tveimur einbýlishúsum við Holtstún á milli Stekkjar og Asparvíkur sem grenndarkynnt hefur verið í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Engar athugasemdir bárust.
Með vísan í 44.gr.Skipulagslaga gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
02
Einilundur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að útfærslu lóðar þ.a.m. skjólveggja.
Veggir meðfram lóðarmörkum að Hostaðabraut og Einilundi eru hærri en samþykkt um veggi og girðingar í Garðabæ kveður á um.
Sækja skal um deiliskipulagsbreytingu sem verður vísað til nýrrar skipulagsnefndar.
03
Hagaflöt 1 Viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um þrjár tillögur að stækkun íbúðarhúss að Hagaflöt 1.
Allar tillögur kalla á breytingu á deiliskipulagi Flata og því þarf að sækja um þá breytingu.
Tillaga A gengur skemmst og gæti skipulagsstjóri tekið þá tillögu fyrir á afgreiðslufundi. Tillögur B og C ganga það langt að vísa þyrfti umsóknum um deiliskipulagsbreytingu sem byggja á þeim til skipulagsnefndar.
04
Stekkjaflöt 2 - hljóðveggur
Lagðar fram tillögur að útfærslu girðinga á lóðarmörkum.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar og deiliskipulags Flata gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við útfærslu girðinga enda er álag lóðar vegna umferðarþunga talsvert.
05
Jafnakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem að ný viðbygging nær líttillaga út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar um ofangreint atriði. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
06
Miðhraun 18 breyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirpurn um breyttan byggingarreit sem myndi færast nær götu.
Skipulagstjóri vísar fyrirspurn til nýrrar skipulagsnefndar.
Afla skal umsagnar deiliskipulagshöfundar um fyrirspurnina.
07
Brekkugata 27 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð palla á framlóð.
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagsöfundar.
08
Grímsgata 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lóðaruppdrætti vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
09
Víkurgata 1-7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn er vísað til nýrrar skipulagsnefndar.
10
Dyngjugata 15 - Steypt bílaplan - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Með vísan í aðrar byggingarleyfisumsóknir gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað útfærslu á bílaplani varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.