Beint í efni

Miðhraun 18 breyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2205229

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (923). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar um að synja umsókn lóðarhafa að Miðhrauni 18 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns. Í umsókninni er farið fram á að breyta lögun byggingarreits lóðarinnar að Miðhrauni 18 til að gera mögulegt að stækka húsið með viðbyggingu á lóðinni að götu. Fyrir liggur umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að umsókn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar samrýmist ekki markmiðum deiliskipulags Molduhrauns m.a. um gagnkvæman umferðarrétt milli lóða og þá er einnig um að ræða að þrengt er að bílastæðum meðfram götu. (Mál nr. 2205229)

Bæjarráð Garðabæjar

02

21. (2074. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um að synja umsókn lóðarhafa að Miðhrauni 18 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns. Í umsókninni er farið fram á að breyta lögun byggingarreits lóðarinnar að Miðhrauni 18 til að gera mögulegt að stækka húsið með viðbyggingu á lóðinni að götu. Fyrir liggur umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að umsókn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar samrýmist ekki markmiðum deiliskipulags Molduhrauns m.a. um gagnkvæman umferðarrétt milli lóða og þá er einnig um að ræða að þrengt er að bílastæðum meðfram götu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerði ráð fyrir stækkun byggingarreits á framlóð Miðhrauns nr.18.
Skipulagsnefnd hafnar þeirri tillögu sem lóðarhafa hefur lagt fram þar sem að umfang stækkunarinnar samræmist ekki markmiðum deiliskipulagsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við gafl atvinnuhúsnæðisins að Miðhrauni 18. Lagðar fram tvær tillögur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa og skoðunar hjá Umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

1. fundur

Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu við þann enda hússins að Miðhrauni 18 sem snýr að götunni og kallar á stækkun byggingarreits.
Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um breytingu á lögun byggingarreits þannig að hann myndi að hluta til ná út fyrir bindandi byggingarlínu eins og hún kemur fram á deiliskipulaguppdrætti.

Tillögu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

6. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

09

4. fundur

Lögð fram fyrirpurn um breyttan byggingarreit sem myndi færast nær götu.
Skipulagstjóri vísar fyrirspurn til nýrrar skipulagsnefndar.
Afla skal umsagnar deiliskipulagshöfundar um fyrirspurnina.