Beint í efni

43. (2001). fundur

09.11.2021
Bæjarráð Garðabæjar

43. (2001). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

09.11.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID-19 - staða mála. (Jón Viðar mætir á fundinn)

Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og gerði grein fyrir vinnu sem er hafin við að kortleggja búsetu í atvinnuhúsnæði. Þá fór Jón Viðar yfir stöðu mála varðandi Covid -19 og kom fram að fjöldi smita er að aukast og nýgengi smita er með því hæsta sem verið hefur í faraldrinum. Jón Viðar fór nánar yfir nýjar reglur um hertar aðgerðir.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Ingvar Arnarson og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.

Lúðvík Hjalti Jónsson, sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.

Málsnúmer 2106536

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2022 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2021 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar

Rætt um hækkun gjaldskráa þjónustugjalda.

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa frá íbúum.

Málsnúmer 2111123

03

Tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Garðabæjar.

Lögð fram tillaga að breytingu á samþykktum um stjórn Garðabæjar þar sem m.a. er lagt til að sett verði ákvæði sem heimilar bæjarfulltrúum og fulltrúum í fastanefndum bæjarstjórnar að taka þátt í fundum með rafrænum hætti

Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111122

04

Kumlamýri - úthlutun lóða og sala byggingarréttar.

Bæjarstjóri kynnti skilmála um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar lóða við Kumlamýri á Álftanesi.

Um er að ræða úthlutun og sölu byggingarréttar 26 lóða við Kumlamýri.

Í skilmálunum kemur fram að einungis einstaklingar geta gert tilboð í lóðirnar og þurfa tveir einstaklingar saman að gera tilboð í hverja samliggjandi parhúsalóð og eru sameiginlega ábyrgir fyrir greiðslu byggingarréttargjalds. Lágmarkstilboð byggingarréttar í hverja einstaka parhúsalóð er kr. 10.000.000.

Bæjarráð samþykkir að lóðir við Kumlamýri verði auglýstar til úthlutunar.

Málsnúmer 2111012

05

Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi alþjóðlegan minningardag Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa, dags. 29.10.21.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111094

06

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um boð í þátttöku sveitarfélaga í námskeiðinu Loftlagsvernd í verki, dags. 02.11.21.

Í bréfinu kemur fram að Landvernd býður sveitarstjórnarfólki þátttöku í námskeiðinu Loftlagsvernd í verki. Um er að ræða námskeið sem tekur sex vikur og verður í boði frá og með janúar 2022.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarfulltrúa og umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111097

07

Bréf mennta- og menningarmálaráðherra og forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum varðandi dag íslenskrar tungu 16. nóvember, dags. 01.11.21.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111067

08

Bréf Samgöngustofu varðandi beiðni um umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi fyrir starfsstöð ökutækjaleigu, dags. 01.11.21.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að skráð starfsstöð ökutækjaleigu Vegvísis travel Iceland ehf. , kt. 530721-0430 verði að Holtsvegi 29, Garðabæ enda verði uppfyllt það skilyrði sem fram kemur í umsókn að ökutæki í eigu leigunnar verði aldrei staðsett við skráða starfsstöð.

Málsnúmer 2111095

09

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál, dags. 02.11.21.

Lagt fram og vísað til kynningar í leikskólanefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111098

10

Bréf foreldrafélags Álftanesskóla varðandi framkvæmdir á skólalóð Álftanesskóla, dags. 02.11.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2110411

11

Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um minnisblað er varðar fjölda nemenda á unglingastigi.

Málsnúmer 2111107

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á Garðatorgi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verið veitt.

Málsnúmer 2111105

13

Bréf Costco varðandi upplýsingagjöf til viðskiptamanna, dags í október 2021.

Lagt fram.

Málsnúmer 2111030

14

Bréf Minjaverndar varðandi endurbyggingu yfirlæknishúss að Vífilsstöðum, dags. 22.10.21.

Lagt fram til upplýsingar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111108

15

Bréf Siglingaklúbbsins Vogs um bætta aðstöðu í Arnarvogi, dags. 01.11.21.

Málsnúmer 2111120

16

Erindi TH varðandi útisafn með víkingaþema á höfuðborgarsvæðinu, dags. 02.11.21.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111126

17

Bréf Sjónarhóls varðandi samstarf og styrk til starfseminnar, dags. 05.11.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.