Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi staðfestingu á breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar, dags. 04.01.22.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
1. (2008). fundur
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur staðfest breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar þar sem meðal annars kemur fram heimild til fjarfunda í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
17. (895). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingum á samþykktum um stjórn Garðabæjar.
Samþykktin skal send samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til staðfestingar og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
16. (894). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingum á samþykktum um stjórn Garðabæjar og lagði til að tillögunni verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð Garðabæjar
04
43. (2001). fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á samþykktum um stjórn Garðabæjar þar sem m.a. er lagt til að sett verði ákvæði sem heimilar bæjarfulltrúum og fulltrúum í fastanefndum bæjarstjórnar að taka þátt í fundum með rafrænum hætti
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.