Beint í efni

Opnun tilboða vegna þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.

Málsnúmer 2101200

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

8. (2015). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.

Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3
Rafmagnsþjónustan ehf. 17.576.250 17.415.000 17.324.700
Raf og tæknilausnir ehf. 21.950.000 21.950.000 21.950.000
Rafafl ehf. 31.500.000 31.500.000 31.500.000
Eco Raf 23.835.000 23.154.000 26.105.000
TG Raf ehf. 21.371.246 21.371.246 21.371.246
Raflýsing ehf. 17.630.000 17.630.000 19.350.000
Fagtækni ehf. 26.389.652 26.389.652 26.389.652
Rafsetning ehf. 22.016.450 22.623.800 22.623.800
Rafboði ehf. 15.695.650 15.695.650 15.695.650
Rafstoð ehf. 21.889.400 22.412.500 20.785.000
Rafsel ehf. 21.553.000 21.553.000 21.553.000

Á opnunarfundi fór fulltrúi Rafmagnsþjónustunnar ehf. fram á að bókað væri áður en tilboð voru opnuð að útboðið hafi verið kært til kærunefndar útboðsmála en niðurstaða kærumálsins liggur ekki fyrir. Kæran var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sem haldinn var 1. febrúar 2022 og var samþykkt að fela Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu. Engar athugasemdir komu fram eftir opnun tilboða.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Rafboða ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

48. (2006). fundur

Lagðir fram til kynningar útboðsskilmálar vegna þjónustu iðnarmanna ? raflagnir.

Bæjarráð samþykkir að útboð verði auglýst á grundvelli fyrirliggjandi skilmála.

Bæjarráð Garðabæjar

03

28. (1986). fundur

Eftirfarandi tilboð hafa verið yfirfarin.

H og M ehf. kr. 47.445.000
Málningarþjónusta Hannesar og Valgeirs kr. 47.500.000
Iðnmálun kr. 48.500.800

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda H og M ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

04

26. (1984). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu iðnaðarmanna - raflagnir.

Eftirfarandi tilboð bárust:
Bjóðandi Svæði 1: Svæði 2: Svæði 3:
Lýsing og Lagnir kr. 18.633.850 kr. 18.633.850 kr. 18.633.850
Raflýsing kr. 17.587.000 kr. 17.587.000 kr. 17.587.000
Rafmagnsþjónustan kr. 17.544.000 kr. 18.262.100 kr. 18.262.100
Raftengi kr. 23.440.450 kr. 23.440.450 kr. 23.440.450
Fossraf kr. 26.543.510 kr. 26.543.510 kr. 26.543.510
Dry-Tækni ehf. kr. 16.480.000 kr. 17.520.000 kr. 18.685.000
BB rafverktaktar kr. 21.780.700 kr. 21.780.700 kr. 21.780.700
H og S rafverktaktar kr. 21.979.750 kr. 24.225.000 kr. 26.910.000
Ecoraf kr. 16.575.000 kr. 16.575.000 kr. 16.575.000
TGRaf kr. 20.657.997 kr. 20.657.997 kr. 20.657.997
AJ Raf kr. 20.344.000 kr. 20.344.000
Rafsel kr. 20.585.000 kr. 20.585.000 kr. 20.585.000
Rafboði kr. 17.594.800 kr. 17.594.800 kr. 17.594.800
Kostnaðaráætlun kr. 23.475.000 kr. 23.475.000 kr. 23.475.000

Unnið er að yfirferð tilboða og verða þau tekin fyrir að nýju að lokinni yfirferð.

Upplýst var um að Rafmagnsþjónustan ehf. hefur kært útboðið til kærunefndar útboðsmála.

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu iðnaðarmanna - málningarvinna.

Eftir yfirferð
H og M ehf. kr. 46.235.000 kr. 47.445.000
Málningarþjónusta Hannesar og Valgeirs ehf. kr. 45.970.000 kr. 47.500.000
Iðnmálun kr. 47.600.000 kr. 48.500.000
Kostnaðaráætlun kr. 54.130.000

Unnið er að skoðun og útvegun gagna og verða tilboð lögð fram að nýju að þeirri vinnu lokinni.

Bæjarráð Garðabæjar

05

22. (1980). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir skilmálum útboðs vegna þjónusta iðnaðarmanna og fór sérstaklega yfir breytingar sem gerðar hafa verið á skilmálum sem áður voru auglýstir en afturkallaðir.

Bæjarráð samþykkir útboðskilmálana og auglýsingu útboðs vegna þjónustu málara og rafvirkja.

Bæjarráð Garðabæjar

06

18. (1976). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis gerði grein fyrir stöðu mála varðandi útboð og þjónustu iðnaðarmanna. Búið var að bjóða út þjónustu rafvirkja og málara en vegna ábendinga og athugasemda var auglýsing um útboð afturkölluð. Farið var nánar yfir helstu athugasemdir sem fram komu og sagt frá vinnu við að bæta úr mögulegum annmörkun. Þegar skilmálar hafa verið yfirfarnir verða þeir lagðir fram til kynningar og samþykktar í bæjarráði.
Lagt fram bréf Rafmagnsþjónustunnar varðandi rammaútboð, dags. 19. apríl 2021.

Bæjarráð Garðabæjar

07

6. (1964). fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir undirbúningi að gerð útboðsgagna vegna útboðs á þjónustu iðnaðarmanna.

Lagt fram til kynningar minnisblað Juris um innkaup á þjónustu iðnaðarmanna.