28. (1986). fundur
28. (1986). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
27.07.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Stella Stefánsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bakkaflöt 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Elísabetu Björnsdóttur, kt. 161265-8299, leyfi til að rífa núverandi hús að Bakkaflöt 12.
02
Brekkubyggð 35 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gylfa Sigurðssyni, kt. 260159-2169, leyfi til að byggja sólskála við núverandi hús við Brekkubyggð 35.
03
Háholt 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Valdimar Johnsen, kt. 051268-3349, leyfi til að breyta útliti húss með nýjum gluggum og leyfi til breytinga á innra skipulagi núverandi húss við Háholt 4.
04
Strandvegur 12-16 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf., kt. 681290-2309, leyfi til að styrkja plötu o.fl. í bílkjallara núverandi fjölbýlishúss við Strandveg 12-16.
05
Bréf Landspítala varðandi breytingar á þjónustu við alvarlega langveik börn, dags. 02.07.21.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og upplýst er að bréfið mun verða tekið fyrir á reglubundnum fundi samráðshóps sviðsstjóra velferðarþjónustu innan SSH sem haldinn verður í ágúst.
Fylgiskjöl
06
Tilboð í þjónustu iðnaðarmanna - málarar.
Eftirfarandi tilboð hafa verið yfirfarin.
H og M ehf. kr. 47.445.000
Málningarþjónusta Hannesar og Valgeirs kr. 47.500.000
Iðnmálun kr. 48.500.800
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda H og M ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
07
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um uppfærslu á skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins, dags. 22.07.21.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfisnefnd.