Beint í efni

Brekkubyggð 35 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2106617

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (908). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis, að uppfylltum öllum skilyrðum, vegna byggingar sólskála við íbúð 07-0001 að Brekkubyggð 35. Umsókn um byggingarleyfi var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir og þá liggur fyrir samþykki lóðarhafa sameiginlegrar lóðar við Brekkubyggð 25-35 vegna hækkunar á þaki um 20 cm miðað við grenndarkynnta tillögu. (Mál nr. 2106617)

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (2039). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis, að uppfylltum öllum skilyrðum, vegna byggingar sólskála við íbúð 07 0001 að Brekkubyggð 35. Umsókn um byggingarleyfi var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir og þá liggur fyrir samþykki lóðarhafa sameiginlegrar lóðar við Brekkubyggð 25-35 vegna hækkunar á þaki um 20 cm miðað við grenndarkynnta tillögu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn með þeirri breytingu á áður grenndarkynntri umsókn að lofthæð sólskála hækkar um 20 cm. Þeir aðilar sem grenndarkynning náði til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna.
Skiplagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlögð gögn sbr. 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

04

28. (1986). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gylfa Sigurðssyni, kt. 260159-2169, leyfi til að byggja sólskála við núverandi hús við Brekkubyggð 35.