Beint í efni

21. (2028). fundur

14.06.2022
Bæjarráð Garðabæjar

21. (2028). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.06.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
  • Sunna Stefánsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2106536

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - viðauki nr. 1.

Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðbæjar fyrir árið 2022.

Í viðaukanum er búið að færa hlutdeild Garðabæjar í áætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpu bs. og Strætó fyrir árið 2022 í upphaflega samþykkta áætlun fyrir árið 2022.

Viðaukinn er gerður vegna breytinga á 20. gr. reglugerðar nr. 121/2015 þar sem kveðið er á um að færa samstarfsverkefni og byggðasamlög inn í samantekin reikningskil sveitarfélaga miðað við hlutfallslega ábyrgð sveitarfélags. Í yfirlit með viðaukanum eru sýnd áhrif hans á rekstur og sjóðstreymi samkvæmt fjárhagsáætlun.

Samkvæmt viðaukanum batnar rekstrarstaða A og B hluta um 13,5 mkr. Hlutur Garðabæjar í fjárfestingum byggðasamlaganna er áætluð um 103,6 mkr og er þegar fjármagnaður hjá samlögunum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2202267

02

Skógarprýði 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rakel Arnfjörð Haraldsdóttur, kt. 160370-5569, leyfi til að byggja einbýlishús að Skógarprýði 10.

Málsnúmer 2205352

03

Opnun tilboða í yfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ 2022.

Eftir farandi tilboð bárust í íyfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ.

GSG ehf. kr. 4.463.500

Vegamál vegmerking ehf. kr. 6.971.800

Kostnaðaráætlun kr. 9.940.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda GSG ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2006465

04

Dómur Landsréttar í máli Elbu ehf. gegn Garðabæ, mál nr. 121/2021.

Lagður fram dómur Landsréttar í máli Elbu ehf. gegn Garðabæ.

Í dómsorði kemur fram að fallist á kröfur Garðabæjar um staðfestingu á hinum áfrýjaða dómi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2107321

05

Tilboð í byggingarrétt lóða við Þorraholt 2 - 4.

Lögð fram eftirfarandi tilboð í byggingarrétt lóða við Þorraholt 2 og 4.

Tilboð 1.

Þorraholt 2 og 4 kr. 210.000.000.

Tilboð 2

Þorraholt 2 kr. 138.000.000

Þorraholt 4 kr. 144.250.000

Samtals: kr. 282.250.000

Á fundinum var upplýst að tilboð 2 er frá Heklu fasteignum hf., kt. 631202-3060.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn Heklu fasteigna ehf. um nánari útfærslu tilboðsins og áform félagsins varðandi starfsemi á lóðunum.

Málsnúmer 1711191

06

Bréf mennta- og barnamálaráðuneytis varðandi umbótaáætlun fyrir Flataskóla, dags. 08.06.22.

Í bréfi ráðuneytisins, dags. 9. júní sl. kemur fram að Garðabær og Flataskóli hafa gert fyllilega grein fyrir umbótum í kjölfar úttektar ráðuneytisins og er málinu lokið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2205122

07

Útgáfa á upplýsingaöryggisstefnu Garðabæjar.

Lögð fram og kynnt útgáfa á upplýsingaöryggisstefnu Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2202330

08

Reglur um greiðslur til forráðmanna barna eldri en 12 mánaða sem ekki hafa fengið úthlutað leikskólavist.

Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um greiðslur til forráðmanna barna eldri en 12 ára sem ekki hafa fengið úthlutað leiksólavist í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2206127

09

Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning fyrir árið 2021, dags. 02.06.22.

Lagt fram.

Ingvar Arnarson og Sara Dögg Svanhildardóttir, lögðu fram eftirfarandi bókun.

"Bæjarfulltrúar Viðreisnar og Garðabæjarlistans óska eftir sundurliðun á úthlutun úr styrktarsjóði Garðasóknar. En Garðabær leggur sjóðnum til fjárhæð á ári hverju.

En mikilvægt er að viðhafa gagnsæi við úthlutun fjármuna úr bæjarsjóði.

Einnig óska fulltrúar Viðreisnar og Garðabæjarlistans eftir upplýsingum um úthlutunarreglur úr styrktarsjóði Garðasóknar."



Fylgiskjöl

Málsnúmer 2206139

10

Erindi Carbfix ohf. varðandi uppsetningu skjálftamæla.

Bæjaráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við uppsetningu skjálftamæla á Garðaholti og vísar málinu til afgreiðslu umhverfisnefndar. Staðsetning skjálftamæla skal kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á Garðaholti.

Málsnúmer 2102515

11

Opnun tilboða í skólamáltíðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2022-2025.

Lögð fram eftirfarandi tilboð í skólamáltíðir í grunn- og leikskólum Garðabæjar 2022-2025.

Magn Umhverfisvaktin Matartíminn Skólamatur

Skóli Verð kr. Verð kr. Verð kr.

Flataskóli 310 284.890 264.430 265.050

Garðaskóli 490 377.790 418.950

Sjálandsskóli 415 381.385 333.660 354.825

Hofsstaðaskóli 300 275.700 270.300 256.500

Álftanesskóli 200 193.000 171.000

Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli 150 144.750 138.000

Leikskóli Urriðah 120 135.360 151.440

Samtals Urriðah. - 280.110 289.440

Mánahvoll - 60 60.780 74.520

Sunnuhvoll - 27 58.050 52.434

Bæjarból - 79 89.507 98.118

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs upplýsti að næringarfræðingur er að yfirfara matseðla og munu niðurstöður liggja fyrir innan 14. daga. Stefnt er því að taka tilboðin fyrir að nýju í bæjarráði 28. júní nk.