10. (2158). fundur
10. (2158). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
11.03.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2503029
01
Sjóvarnir á Álftanesi og í Garðahverfi
Lögð fram tilkynning Garðabæjar til Náttúruhamfaratrygginga vegna tjóns sem varð vegna rofs á sjóvarnargörðum og ágangs sjávar 1. og 2. mars sl. Ástæðu tjónsins má rekja til hárrar sjávarstöðu og óhagstæðra veðurskilyrða.
Í svari Náttúruhamfaratrygginga telur stofnunin að ekki verði séð að um sé að ræða hagsmuni sem hægt er að vátryggja og því ekki um bótaskylt tjón að ræða.
Málsnúmer 2503125
02
Þjónustumiðstöð Garðabæjar
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir minnisblað vegna aðstöðu fyrir þjónustumiðstöð Garðabæjar.
Í minnisblaðinu er metin möguleg staðsetning þjónustumiðstöðar út frá stækkandi sveitarfélagi og þeirri staðreynd að staðsetning núverandi þjónustumiðstöðvar á Lyngási er á lóð sem er hluti af þróunarsvæði A, sem til stendur að fari í endurskoðun skipulags.
Miðað við framtíðarskipulag Garðabæjar og fyrirhugað stofnvegakerfi er Molduhraun talinn vænlegasti kosturinn fyrir starfsemi þjónustumiðstöð Garðabæjar.
Bæjarráð vísar málinu til frekari skoðunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 2503126
03
Upplýsingaöryggisstefna Garðabæjar
Sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs kynnti upplýsingaöryggisstefnu Garðabæjar. Stefnan byggir á alþjóðlegum stöðlum og bestu venjum um upplýsingaöryggi og persónuvernd. Stefnan gildir fyrir allt starfsfólk Garðbæjar, kjörna fulltrúa, samningsbundna verktaka og notendur þjónustu eftir atvikum.
Málsnúmer 2412004
04
Kjarasamningar KÍ.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, fór yfir minnisblað um ráðgerð áhrif nýgerðs kjarasamnings Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Eru þar einkum um að ræða áhrif vegna 8% innborgunar vegna virðismats. Samkvæmt útreikningum er gert ráð fyrir að útgjaldaaukning vegna bæjarrekinna leik-, grunn- og tónlistarskóla verði samtals 372mkr. Þá er útgjaldaaukning vegna framlaga til sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla áætluð 161 m.kr. Áætlaður útgjaldaauki nemur þannig um 533mkr. á árinu 2025.
Nauðsynlegt er að bregðast við þeim umframkostnaði með markvissum aðgerðum, s.s. hagræðingu í rekstri. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að tillögum um útfærslu aðgerða.
Birgitta Rós Nikulásdóttir, deildarstjóri kjaradeildar, sat fundinn undir þessum fundarlið.
Málsnúmer 2502298
05
Umsögn Garðabæjar um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Lögð fram umsögn Garðabæjar vegna frumvarps til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Málsnúmer 2202453
06
Bréf Persónuverndar varðandi eftirfylgni á úttekt á skýjalausnum í grunnskólastarfi, dags. 5. mars 2025.
Lagt fram erindi Persónuverndar vegna eftirfylgni ákvörðunar vegna úttektar á kennslulausninni Google Workspace for Education (Google-nemendakerfið) í grunnskólum Garðabæjar.
Fram kemur að Persónuvernd telur að Garðabær hafi farið að fyrirmælum þeim sem lögð voru fyrir sveitarfélagið í ákvörðun stofnunarinnar, með fyrirvara um staðfestingu viðauka um vinnslusamning og skilmála Google.
Málsnúmer 2502329
07
Bréf Brynju leigufélags varðandi umsókn um stofnframlög, dags. 17. febrúar 2025.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að verða við erindi Brynju leigufélags ses. um greiðslu stofnframlags vegna kaupa á þremur tveggja og þriggja herbergja íbúðum í Garðabæ árið 2025. Áætlað kaupverð er 205,2 mkr. og nemur stofnframlag 12% eða 24,6 mkr.
Málsnúmer 2503119
08
Upplýsingabeiðni Alþýðusambands Íslands, SGS og Eflingar um útvistun sveitarfélags á ræstingu og þrifum, dags. 6. mars 2025.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 2503044
09
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna árshátíðar Garðabæjar í Mýrinni.
Lögð fram beiðni UMF. Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á árshátíð Garðabæjar í íþróttahúsinu Mýrinni 15. mars 2025.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2503046
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir Jazzþorpið á Garðatorgi
Lögð fram beiðni Garðabæjar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga fyrir Jazzþorpið í Garðabæ dagana 2-4. maí 2025.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2503045
11
Aðalfundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga 2025.
Lagt fram.
Málsnúmer 2503117
12
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 101. mál, dags. 6. mars 2025.
Lagt fram.