Beint í efni

Tillögur að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 2502298

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

15. (2163). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu og framgangi frumvarps til laga um jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem liggur fyrir Alþingi.

Bæjarráð ítrekar sjónarmið Garðabæjar sem fram komu í erindi bæjarstjóra Garðabæjar í samráðsgátt um málið. Bæjarráð áréttar mikilvægi þess að frumvarpið taki breytingum varðandi tillögur um skerðingu framlaga í þeim tilvikum sem sveitarstjórn nýtir sjálfskákvörðunarrétt sinn til ákvörðunar útsvars í samræmi við heimildir í 1.mgr. 23.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. einnig 1.mgr. 24.gr. laganna. Leggur bæjarráð áherslu á að það sé á valdi hverrar sveitarstjórnar að ákvarða álagningarhlutfall útsvars innan ákveðinna marka og að sú ákvörðun hafi ekki áhrif á hlutdeild Jöfnunarsjóðs af útsvarsgreiðslum viðkomandi sveitarfélags. Standi frumvarpið óbreytt megi gera ráð fyrir að Garðabær verði þannig þvingaður til hækkunar útsvars.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera athugasemdir við framkomið lagafrumvarp þar sem framangreind sjónarmið Garðabæjar verði áréttuð.

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (2158). fundur

Lögð fram umsögn Garðabæjar vegna frumvarps til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Bæjarráð Garðabæjar

03

8. (2156). fundur

Drög að frumvarpi til laga um Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lögð fram. Í frumvarpinu kom fram tillögur um gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem birtar eru í samráðsgátt stjórnvalda. Tillögurnar byggja á skýrslu starfshóps um endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs. Frestur til að skila umsögn er til 5. mars 2025

Meðal breytinga er:

Nýtt jöfnunarframlag. Lagt er til að það verði veitt vegna sérstakra áskorana sem skiptist í:

Framlag vegna sérstaks byggðastuðnings.

Framlag til sveitarfélaga með sérstakt höfuðstaðarálag.

Breytingar á framlögum vegna íslensku sem annað tungumál.

Lagt er til að Reykjavíkurborg fá greidd framlög vegna kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál.

Vannýting útsvars dregin frá framlögum.

Starfshópurinn leggur til að nýti sveitarfélag ekki útsvarshlutfall að fullu komi til skerðingar á framlögum úr Jöfnunarsjóði sem nemi vannýttum útsvarstekjum, þ.e. mismuni á útsvari miðað við hámarksálagningu og útsvari miðað við álagningarhlutfall sveitarfélags.

Starfshópurinn leggur til að nýtt líkan jöfnunarframlaga verði innleitt í skrefum á fjögurra ára tímabili til að stuðla megi að fyrirsjáanleika í rekstri sveitarfélaga.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera athugasemdir við tillögur um skerðingu framlaga í þeim tilvikum sem sveitarstjórn nýtir sjálfsákvörðunarrétt sinn til ákvörðunar útsvars í samræmi við heimildir í 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. einnig 1. mgr. 24. gr. laganna. Í lögunum kemur skýrt fram að það er á valdi hverrar sveitarstjórnar að ákvarða álagningarhlutfall útsvars innan ákveðinna marka og hefur sú ákvörðun engin áhrif á hlutdeild Jöfnunarsjóðs af útsvarsgreiðslum íbúa viðkomandi sveitarfélags.

Á árinu 2024 var hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvari Garðabæjar um 3.145 milljónir króna á sama tíma og sjóðurinn greiddi framlög til Garðabæjar að fjárhæð um 2.760 milljónir króna. Garðbæingar greiddu því í sjóðinn um 385 milljónir króna umfram það sem sjóðurinn greiddi sem framlög til Garðabæjar.