Beint í efni

Framtíðarstaðsetning þjónustumiðstöðvar Garðabæjar.

Málsnúmer 2503125

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

44. (2192). fundur

Fyrir liggur þarfagreining umhverfissviðs vegna aðstöðu fyrir Þjónustumiðstöð Garðabæjar. Við nánari rýni þarfagreiningarinnar er metið að hagfelldasti kosturinn sé lóðin að Garðahrauni 1. Þar er um að ræða staðsetningu við fyrirhugaðan Álftanesveg með tengingu til austurs og vesturs. Stærð lóðarinnar er 1,5 hektari. Engin bygging er á lóðinni og byggingarreitur er 8.600 fermetrar.

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til viðræðna við lóðarhafa, ÞR Þróun ehf., um möguleg uppbyggingaráform þjónustumiðstöðvar Garðabæjar á lóðinni.

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (2158). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir minnisblað vegna aðstöðu fyrir þjónustumiðstöð Garðabæjar.

Í minnisblaðinu er metin möguleg staðsetning þjónustumiðstöðar út frá stækkandi sveitarfélagi og þeirri staðreynd að staðsetning núverandi þjónustumiðstöðvar á Lyngási er á lóð sem er hluti af þróunarsvæði A, sem til stendur að fari í endurskoðun skipulags.

Miðað við framtíðarskipulag Garðabæjar og fyrirhugað stofnvegakerfi er Molduhraun talinn vænlegasti kosturinn fyrir starfsemi þjónustumiðstöð Garðabæjar.

Bæjarráð vísar málinu til frekari skoðunar bæjarstjóra.