Sjóvarnir á Álftanesi og í Garðahverfi
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
33 (22-26). fundur
Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti stöðu sjóvarna á Álftanesi og Garðahverfi. Vegagerðin hefur hafið framkvæmdir vegna sjóvarnarverkefna á Álftanesi samkvæmt samgönguáætlun á eftirfarandi stöðum: Hliðsnes, Höfðabraut við Hlið, Kasthúsatjörn og Blikastíg.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (2185). fundur
Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu grein fyrir stöðu sjóvarna á Álftanesi og Garðahverfi og fyrirhuguðum úrbótum vegna rofs sem hefur komið í sjóvarnargarða vegna ágangs veðurs.
Bæjarráð telur ástand sjóvarna í bænum óásættanlegt, enda mannvirki í eigu íbúa og sveitarfélagsins í hættu. Afar brýnt er að ekki verði tafir á fyrirhuguðum endurbótum Vegagerðarinnar á varnargörðum á Álftanesi og Hliðsnesi og þær hefjist á þessu ári. Ljóst er að framkvæmdaáætlun Vegagerðarinnar gengur ekki nægilega langt. Því er skorað á innviðaráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að tryggja fjármögnun á frekari endurbótum á sjóvörnum innan Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
10. (2158). fundur
Lögð fram tilkynning Garðabæjar til Náttúruhamfaratrygginga vegna tjóns sem varð vegna rofs á sjóvarnargörðum og ágangs sjávar 1. og 2. mars sl. Ástæðu tjónsins má rekja til hárrar sjávarstöðu og óhagstæðra veðurskilyrða.
Í svari Náttúruhamfaratrygginga telur stofnunin að ekki verði séð að um sé að ræða hagsmuni sem hægt er að vátryggja og því ekki um bótaskylt tjón að ræða.
Bæjarráð Garðabæjar
04
9. (2157). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir mikinn ágang sjávar á Álftanesi og Garðahverfi í stórviðri undanfarinna daga og umfangsmiklar afleiðingar þess og tjón. Þá kynnti hún áætlanir um sjóvarnir á svæðinu á næstu árum. Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af stöðu sjóvarna á svæðinu og telur nauðsynlegt að uppfæra aðgerðalista og flýta brýnum framkvæmdum.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir við ráðherra, Vegagerðina og Náttúruhamfaratryggingar.