37. (2185). fundur
37. (2185). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
14.10.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Hlynur Elías Bæringsson - varamaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2503029
01
Sjóvarnir
Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu grein fyrir stöðu sjóvarna á Álftanesi og Garðahverfi og fyrirhuguðum úrbótum vegna rofs sem hefur komið í sjóvarnargarða vegna ágangs veðurs.
Bæjarráð telur ástand sjóvarna í bænum óásættanlegt, enda mannvirki í eigu íbúa og sveitarfélagsins í hættu. Afar brýnt er að ekki verði tafir á fyrirhuguðum endurbótum Vegagerðarinnar á varnargörðum á Álftanesi og Hliðsnesi og þær hefjist á þessu ári. Ljóst er að framkvæmdaáætlun Vegagerðarinnar gengur ekki nægilega langt. Því er skorað á innviðaráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að tryggja fjármögnun á frekari endurbótum á sjóvörnum innan Garðabæjar.
Málsnúmer 2509035
02
Garðatorg 7, 5. hæð - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir innanhússbreytingum hjá Garðabæ á 5. hæð Garðatorgs 7.
Málsnúmer 2406092
03
Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Not ehf., kt. 580402-2750, leyfi til að breyta skrifstofurými (204) í íbúð að Gilsbúð 7.
Málsnúmer 2506441
04
Vorbraut 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dverghömrum ehf., kt. 610786-1629, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 14 íbúðum að Vorbraut 16.
Málsnúmer 2506512
05
Þorraholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu 5 íbúða fjölbýlishúss að Þorraholti 3.
Málsnúmer 2505346
06
Þorraholt 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 5 íbúðum að Þorraholti 5.
Málsnúmer 2505017
07
Þorraholt 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu 5 íbúða fjölbýlishúss að Þorraholti 9.
Málsnúmer 2504374
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Forsetinn - Lambamýri 5
Í umsókninni kemur fram að sótt er um leyfi til reksturs Veitingaleyfis í flokki II - C veitingastofu og greiðasölu að Lambamýri 5. Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt, en með því skilyrði að afgreiðslutími áfengis verði til kl. 23:00 daginn fyrir frídaga en ekki miðnættis eins og fram kemur í umsókninni. Þannig beri umsækjanda að gæta hagsmuna nágranna m.t.t. opnunartíma.
Málsnúmer 2510152
09
Fyrirspurn ÖBÍ réttindasamtaka um biðtíma eftir NPA þjónustu, dags. 09.10.25.
Fyrirspurn frá ÖBÍ varðandi biðtíma eftir notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) sem sveitarfélög veita á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Bæjarráð vísar fyrirspurninni til afgreiðslu hjá velferðarsviði.
Málsnúmer 2510167
10
Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um stjórnsýslukæru nr. 154/2025 - Framkvæmdir við lóðamörk Fífumýri 15
Lögð fram kæra lóðarhafa við Fífumýri 13 vegna ábendinga kærenda um veruleg frávik frá grenndarkynningu á framkvæmdum að Fífumýri 15.
Bæjarráð felur Hjalta Steinþórssyni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2510093
11
Tilkynning frá Byggðastofnun um Byggðaráðstefnu þann 4. nóvember nk.
Lagt fram erindi Byggðastofnunar vegna Byggðaráðstefnunnar 2025, sem haldin verður þriðjudaginn 4. nóvember 2025 í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Yfirskrift ráðstefnunnar og viðfangsefni er "Félagslegur fjölbreytileiki samfélaga, jafnvægi, áskoranir eða vannýtt sóknarfæri?".
Málsnúmer 2510169
12
Bréf Kvenréttindafélags Íslands um 50 ára afmæli kvennafrídagsins þann 24. október, dags. 06.10.25.
Bæjarráð tekur undir þau meginmarkmið kvennaverkfalls að hefðbundin kvennastörf, jafnt launuð sem ólaunuð, skuli meta að verðleikum. Stjórnendur hjá Garðabæ hafa verið hvattir til að huga að skipulag á starfsemi stofnana bæjarins geti verið með þeim hætti að sem að sem flestar konur og kvár geti tekið þátt í baráttudeginum, föstudaginn 24. október 2025, að hluta eða í heild. Mikilvægt er að þess verði gætt að nauðsynlegri þjónustu verði sinnt og að öryggi og heilsu fólks sé ekki stofnað í hættu. Jafnframt er mikilvægt að upplýsa þjónustuþega og viðskiptamenn bæjarins um mögulegar skerðingar á þjónustu.
Málsnúmer 2510173
13
Styrkbeiðni Hjálparstarfs kirkjunnar, dags. 09.10.25.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.