Þorraholt 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
37. (2185). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu 5 íbúða fjölbýlishúss að Þorraholti 9.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
8. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppbyggingaraðili hefur gert grein fyrir því að miðað við hönnun húsanna Þorraholt 3, 5,7,9,11,13,15,17 og 19 þá mun heildarbyggingarmagn vera tæpa 280 m2 umfram heimild deiliskipulags og ræðst það af þáttum sem varða hönnun einstakra bygginga. (sjá tölvupóst frá Þorvaldi Gissurarsyni dags.25.maí 2025)
Stærsti hluti þess umfram byggingarmagns eru á lóðinni Þorraholt 9.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreint atriði varðar.
Að öðru leyti gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við framlögð gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.