Beint í efni

Bréf Kvenréttindafélags Íslands um 50 ára afmæli kvennafrídagsins þann 24. október, dags. 06.10.25.

Málsnúmer 2510169

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

37. (2185). fundur

Bæjarráð tekur undir þau meginmarkmið kvennaverkfalls að hefðbundin kvennastörf, jafnt launuð sem ólaunuð, skuli meta að verðleikum. Stjórnendur hjá Garðabæ hafa verið hvattir til að huga að skipulag á starfsemi stofnana bæjarins geti verið með þeim hætti að sem að sem flestar konur og kvár geti tekið þátt í baráttudeginum, föstudaginn 24. október 2025, að hluta eða í heild. Mikilvægt er að þess verði gætt að nauðsynlegri þjónustu verði sinnt og að öryggi og heilsu fólks sé ekki stofnað í hættu. Jafnframt er mikilvægt að upplýsa þjónustuþega og viðskiptamenn bæjarins um mögulegar skerðingar á þjónustu.