Beint í efni

Útboð frístundaaksturs 2022

Málsnúmer 2204048

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

1. fundur

Samið hefur verið við Hópferðamiðstöðina ehf - TREX um akstur frístundabíls í Garðabæ til ársins 2026. Miðað er við 3 akstursleiðir til að skila börnum eftir skóla eða úr frístundaheimilunum í íþróttier og aðrar tómstundir.

Kynnt var að samið hefur verið við Hópferðamiðstöðina ehf - TREX um akstur frístundabíls í Garðabæ til ársins 2026. Miðað er við 3 akstursleiðir til að skila börnum eftir skóla eða úr frístundaheimilunum í íþróttir og aðrar tómstundir.

Bæjarráð Garðabæjar

02

22. (2029). fundur

Eitt tilboð barst í útboði á frístundaakstri í Garðabæ 2022-2026.

Hópferðamiðstöðin ehf. ? TREX kr. 155.520.000

Kostnaðaráætlun kr. 126.720.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Hópferðamiðstöðvarinnar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

42. fundur

Akstur frístundabíls hefur nú verið auglýstur í opnu útboði til fjögurra ára með möguleika á framlengingu. Útboðsgögn eru á vef Garðabæjar og hafa verið auglýst á EES svæðinu. Gengið er út frá akstursleiðum og tímatöflu vorannar 2022.

Akstur frístundabíls hefur nú verið auglýstur í opnu útboði til fjögurra ára með möguleika á framlengingu. Útboðsgögn eru á vef Garðabæjar og hafa verið auglýst á EES svæðinu. Gengið er út frá akstursleiðum og tímatöflu vorannar 2022.

Bæjarráð Garðabæjar

04

15. (2022). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu atriðum útboðslýsingar.

Bæjarráð samþykkir útboðslýsinguna og felur bæjarstjóra að hlutast til að auglýsa útboð á frístundaakstri.