Erindi Sálfræðistofunnar Höfðabakka varðandi styrk til forvarnarverkefnis, dags. 11.04.22.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (2038). fundur
Um er að ræða forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna.
Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði um að Garðabær styrki verkefnið.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð kr. 150.000.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
6. fundur
Mál nr. 2204281 tekið til umfjöllunar. Um er að ræða forvarnarverkefni sem hefur það markmið að gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum til að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Málið var tekið fyrir á fundi fjölskylduráðs þann 15.06.2022 og var þá óskað frekari upplýsinga um umfang, kostnað og tímalínu verkefnis og hvernig verkefninu yrði fylgt eftir og kynnt. Svarið er meðfylgjandi í fylgiskjali.
Mál nr. 2204281 tekið til umræðu. Fyrir liggja upplýsingar tengdar fyrirspurn fjölskylduráðs frá Þórdísi Rúnarsdóttur, sérfræðingi í klínískri sálfræði um umfang, kostnað og tímalínu verkefnis og hvernig verkefninu yrði fylgt eftir og kynnt. Fjölskylduráð telur svarið gefa góða mynd af umfangi verkefnis og kynningu og leggur til við bæjarráð að verkefnið verði styrkt af Garðabæ, og styrkurinn verði afgreiddur af forvarnafulltrúa á Fræðslu- og menningarsviði.
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
5. fundur
Mál nr. 2204281, tekið til umfjöllunar, umsókn um styrk til forvarnarverkefnis. Málinu er vísað til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Um er að ræða hóp fagfólks á Sálfræðistofunni Höfðabakka sem er að vinna forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði að gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Þau sækja um styrk til þess að smíða metnaðarfullt app með æfingum til að þjálfa börn og foreldra í slökun og hugleiðslu, einnig er í smíðum ný verkfærakista um félagsfærni. Allt efni er ókeypis fyrir foreldra og hægt að nálgast það á vefnum.
Mál nr. 2204281, tekið til umfjöllunar. Fjölskylduráð telur verkefnið vera áhugavert og til þess fallið að efla og styrkja sjálfsmynd barna á nýstárlegan hátt og leggur fyrir starfsmenn fjölskyldusviðs að afla frekari upplýsinga um umfang, kostnað og tímalínu verkefnis og hvernig verkefninu yrði fylgt eftir og kynnt. Vísað til áframhaldandi umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs í ágúst.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
42. fundur
Um er að ræða forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Sótt er um styrk til smíða á "appi" með æfingum til að þjálfa börn og foreldra í slökun og hugleiðslu. Einnig er í smíðum ný verkfærakista um félagsfærni.
Í þessari verkfærakistu verða því verkefni sem taka til dæmis á því hvernig maður biðst fyrirgefningar, setur sig í spor annarra, hvernig við leysum ágreining, hvernig við erum góðir vinir, hvernig við hlustum á aðra, tökumst á við drama í samskiptum, stöndum með okkur í félagslegum aðstæðum o.s.frv.
Sálfræðistofan Höfðabakka 9
Forvarnarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur um stöðu verkefnisins og hvernig aðkomu Garðabæjar að verkefninu gæti verið háttað.
Bæjarráð Garðabæjar
05
15. (2022). fundur
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs.