Beint í efni

6. fundur

17.08.2022
Fjölskylduráð Garðabæjar

6. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

17.08.2022

Kl. 16:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðrún Willardsdóttir - félagsráðgjafi
  • Karítas Bjarkadóttir - ráðgjafi í barnavernd
  • Guðrún Jónsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðrún Hrefna Sverrisdóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2207134

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Mál nr. 2207134, lagt fram til afgreiðslu, umsókn um fjárhagsaðstoð.

Afgreiðsla máls nr. 2207134. Umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir umsóknina. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2205327

02

Móttaka flóttafólks frá Úkraínu - staða mála.

Mál nr. 2205327, minnisblað um stöðu mála flóttafólks frá Úkraínu lagt fram til umræðu.

Mál nr. 2205327, minnisblað um stöðu flóttafólks. Guðrún Jónsdóttir verkefnastjóri í málefnum flóttafólks situr fundinn og svara spurningum nefndarmanna.

Málsnúmer 2206182

03

Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd

Mál nr. 2206182 tekið til afgreiðslu. Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd.

Afgreiðsla máls nr.2206182. Fjölskylduráð samþykkir áframhaldandi leyfi fyrir stuðningsfjölskyldu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2207456

04

Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd

Mál nr. 2207456 tekið til afgreiðslu. Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu í barnavernd.

Afgreiðsla máls nr. 2207456. Fjölskylduráð samþykkir áframhaldandi leyfi fyrir stuðningsfjölskyldu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2206349

05

Ósk um yfirlýsingu frá Barnaverndarnefnd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, vegna reksturs á skammtímaheimili fyrir börn og ungmenni

Tekið er fyrir mál nr. 2206349, tölvupóstur frá Klettabæ dags. 21.06.2022 þar sem óskað er eftir yfirlýsingu frá Barnavernd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, um að barnaverndarnefndin sjái því ekkert til fyrirstöðu að Klettabær setji á laggirnar skammtímaheimili fyrir börn og ungmenni á miðhæð og efstu hæð í Breiðási 11.

Afgreiðsla máls nr. 2206349. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga í greinargerð starfsmanns barnaverndarþjónustu, sér Barnaverndarnefnd Garðabæjar ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi skammtímaheimili verði sett á laggirnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1903268

06

Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð

Mál nr. 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar -júlí 2022.

Tölfræðiupplýsingar í barnavernd janúar til júlí 2022 og í fjárhagsaðstoð janúar til júní 2022 lagðar fram til umræðu.

Málsnúmer 2206578

07

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Mál nr. 2206578 lagt fram til afgreiðslu, umsókn um fjárhagsaðstoð tannlæknastyrkur.

Afgreiðsla máls nr. 2206578. Umsókn um fjárhagsaðstoð, tannlæknastyrkur. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir umsóknina. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2206578

08

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Mál nr. 2206578 lagt fram til afgreiðslu, umsókn um fjárhagsaðstoð dvalarstyrkur.

Afgreiðsla máls nr. 2206578. Umsókn um fjárhagsaðstoð, dvalarstyrkur. Fjölskylduráð fjallar um málið og synjar umsókn. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2204281

09

Umsókn um styrk til forvarnarverkefnis

Mál nr. 2204281 tekið til umfjöllunar. Um er að ræða forvarnarverkefni sem hefur það markmið að gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum til að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Málið var tekið fyrir á fundi fjölskylduráðs þann 15.06.2022 og var þá óskað frekari upplýsinga um umfang, kostnað og tímalínu verkefnis og hvernig verkefninu yrði fylgt eftir og kynnt. Svarið er meðfylgjandi í fylgiskjali.

Mál nr. 2204281 tekið til umræðu. Fyrir liggja upplýsingar tengdar fyrirspurn fjölskylduráðs frá Þórdísi Rúnarsdóttur, sérfræðingi í klínískri sálfræði um umfang, kostnað og tímalínu verkefnis og hvernig verkefninu yrði fylgt eftir og kynnt. Fjölskylduráð telur svarið gefa góða mynd af umfangi verkefnis og kynningu og leggur til við bæjarráð að verkefnið verði styrkt af Garðabæ, og styrkurinn verði afgreiddur af forvarnafulltrúa á Fræðslu- og menningarsviði.

Málsnúmer 2105046

10

Starfshópur um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Mál, nr. 2105046, Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 lögð fram til kynningar. Skýrslunni er skipt upp í 3 kafla, í þeim fyrsta er að finna tillögur starfshóps um heildarendurskoðun laganna, í öðrum kafla er umfjöllun um breytingar á lagaumhverfi fatlaðs fólks og í þeim þriðja (viðauka) er að finna fjárhagslega greiningu.

Mál nr. 2105046, skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 er lögð fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð telur skýrsluna vel unna og upplýsandi um mikilvæg mál er snerta þjónustu sveitarfélaga og ríkis við fatlað fólk.

Mikilvægt er fyrir Garðabæ að fylgja vel eftir innan SSH þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni og varða m.a. kostnaðarþróun og úthlutun fjármagns til málaflokksins.

Málsnúmer 2204039

11

Ættleiðingarmál

Mál nr. 2204039, lagt fyrir fund fjölskylduráðs Garðabæjar til afgreiðslu, beiðni um forsamþykki fyrir ættleiðingu barns erlendis frá.

Afgreiðsla máls nr. 2204039. Fjölskylduráð mælir með útgáfu forsamþykkis vegna ættleiðingar barns erlendis frá til umsækjanda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarhluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1909113

12

Barnaverndarmál

Mál nr. 1909113 lagt fram til kynningar.

Mál nr. 1909113. Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu Garðabæjar og Unnur L. Hermannsdóttir, lögmaður sitja fundinn undir þessum dagskrárlið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarhluta fundargerðar.

Málsnúmer 1909114

13

Barnaverndarmál

Mál nr. 1909114 lagt fram til kynningar.

Mál nr. 1909114. Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu Garðabæjar og Unnur L. Hermannsdóttir, lögmaður sitja fundinn undir þessum dagskrárlið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarhluta fundargerðar