Beint í efni

Starfshópur um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Málsnúmer 2105046

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

2. fundur

Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 sem unnin var af starfshóp skipuðum af félags- og barnamálaráðherra þann 21.01.2021.

SKýrslan starfshóps lögð fram til kynningar og umræðu.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

6. fundur

Mál, nr. 2105046, Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 lögð fram til kynningar. Skýrslunni er skipt upp í 3 kafla, í þeim fyrsta er að finna tillögur starfshóps um heildarendurskoðun laganna, í öðrum kafla er umfjöllun um breytingar á lagaumhverfi fatlaðs fólks og í þeim þriðja (viðauka) er að finna fjárhagslega greiningu.

Mál nr. 2105046, skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 er lögð fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð telur skýrsluna vel unna og upplýsandi um mikilvæg mál er snerta þjónustu sveitarfélaga og ríkis við fatlað fólk.
Mikilvægt er fyrir Garðabæ að fylgja vel eftir innan SSH þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni og varða m.a. kostnaðarþróun og úthlutun fjármagns til málaflokksins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

19. (2026). fundur

Skýrslan lögð fram ásamt tilkynningu, dags. 6. maí 2022 frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu um skipun starfshóps sem á að móta tillögur varðandi kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir að leggja til að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu standi að kynningu á skýrslunni fyrir nýjar bæjarstjórnir aðildarsveitarfélaganna.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

13. fundur

Lagt er fram til kynningar samantekt starfshóps á kostnaðarþróun sveitarfélaga á þjónustu við fatlað fólk árin 2018, 2019 og 2020.

Samantekt starfshóps á kostnaðarþróun sveitarfélaga á þjónustu við fatlað fólk árin 2018-2020 er lögð fram til kynningar og starfsmenn svara spurningum ráðsins.

Bæjarráð Garðabæjar

05

46. (2004). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi og aðdraganda málsins og upplýsti að verulega halli á að málaflokkurinn hafi verið fjármagnaður við yfirfærsluna til sveitarfélaganna. Bæjarstjóri sagði að gerðar hafa verið athugasemdir við að ekki er tekið tillit til kostnaðar vegna yfirstjórnar og þá var bent á að verulegar tafir geta verið á framkvæmd CIS mats.

Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds og Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir vinnu við útvegum upplýsinga og útreikninga vegna kostnaðarþróunar Garðabæjar í þjónustu við fatlað fólk.

Niðurstöður kostnaðargreiningar fyrir hvert einstakt á er eftirfarandi

Fjárvöntun 2018 kr. 448.098.233
Fjárvöntun 2019 kr. 482.866.053
Fjárvöntun 2020 kr. 581.885.953

Niðurstöðunum hefur verið skilað til starfshóps á vegum félagsmálaráðuneytis sem vinnur að greiningu á kostnaðarþróun sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk og hefur það hlutverk að vinna samantekt um raunkostað sveitarfélaga árin 2018-2020.

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.