13. fundur
13. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
15.12.2021
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun
Drög að Lýðræðistefnu ásamt viðaukum hefur verið send til umsagnar hjá nefndum Garðabæjar og einnig kynnt á vef Garðabæjar þar sem íbúum gafst kostur á að senda inn ábendingar og athugasemdir.
Farið verður yfir bókanir nefnda og athugasemdir frá íbúum, ásamt því að skoða stefnuna með hliðsjón af öðrum ábendingum.
Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri, situr fundinn undir þessum lið og kynnir stöðu málsins. Starfsmenn munu senda á nefndarmenn þeirra nefnda innan stjórnsýslu sveitarfélagsins sem ekki hafa tekið drögin til umfjöllunar beiðni um athugasemdir og tillögur að breytingum. Drögin verða í kjölfarið lögð fyrir að nýju á næsta fundi fjölskylduráðs til samþykktar stefnunnar í endanlegri útgáfu.
02
Starfshópur um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Lagt er fram til kynningar samantekt starfshóps á kostnaðarþróun sveitarfélaga á þjónustu við fatlað fólk árin 2018, 2019 og 2020.
Samantekt starfshóps á kostnaðarþróun sveitarfélaga á þjónustu við fatlað fólk árin 2018-2020 er lögð fram til kynningar og starfsmenn svara spurningum ráðsins.
03
Breytt skipulag barnaverndar
Lagt er fram til kynningar breytt skipulag barnaverndar, sbr. breytingar á barnaverndarlögum.
Breytingarnar taka gildi að loknum sveitarstjórnarkosningum, þ.e.þann 28. maí 2022.
Breytt skipulag barnaverndar lagt fram til kynningar og tekið til umræðu.
04
Tillaga um endurskoðun úthlutunarreglna félgslegs leiguhúsnæðis
Tillaga Garðabæjarlistans um endurskoðun reglna Garðabæjar um úthlutun félagslegra íbúða lögð fram og rædd. Fjölskylduráð samþykkir tillöguna og leggur til að starfsfólk fjölskyldusviðs taki til endurskoðunar reglurnar og komi með tillögur að úrbótum.