Beint í efni

19. (2026). fundur

24.05.2022
Bæjarráð Garðabæjar

19. (2026). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

24.05.2022

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2109383

01

Könnun á kynjajafnrétti, starfsþróun og símenntun - kynning frá Jafnréttisstofu.

Á fjarfundi frá Akureyri var Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu og gerði hann grein fyrir niðurstöðum viðhorfskönnunar meðal starfsfólks Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun.

Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið var Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri.

Bæjarráð vísar kynningunni til umfjöllunar í fjölskylduráði, skólanefnd grunnskóla, leikskólanefnd og íþrótta- og tómstundaráði.

Málsnúmer 2205327

02

Móttaka flóttafólks frá Úkraínu - staða mála.

Á fund bæjarráðs mætti Guðrún Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Garðabæ vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Guðrún gerði nánari grein fyrir fjölda og samsetningu hópsins og helstu verkefnum við að gera einstaklingum kleift að halda virkni og aðlagast samfélaginu.

Málsnúmer 2205060

03

Kauptún 5 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar leyfi fyrir byggingu leikskóla við Kauptún 5.

Málsnúmer 2205259

04

Bréf TH og JSK varðandi stöðu barna með sérþarfir, dags. 17.05.22.

Í bréfinu er farið fram á bætta þjónustu við börn með sérþarfir yfir sumartímann.

Sviðsstjórar fræðslu- og menningarsviðs og fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir þeirri þjónustu sem er í boði og hvernig brugðist er við í einstaka málum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu og þeim spurningu sem þar eru settar fram.

Málsnúmer 2205267

05

Bréf Bessastaðasóknar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2022, dags. 17.05.22.

Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 321.444 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.

Málsnúmer 2205306

06

Bréf Lagastoðar f.h. umbj. varðandi hljóðmengun frá Hafnarfjarðarvegi, dags. 12.05.22.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Málsnúmer 2105046

07

Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á lögum nr. nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Skýrslan lögð fram ásamt tilkynningu, dags. 6. maí 2022 frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu um skipun starfshóps sem á að móta tillögur varðandi kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir að leggja til að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu standi að kynningu á skýrslunni fyrir nýjar bæjarstjórnir aðildarsveitarfélaganna.

Málsnúmer 2205295

08

Erindi Fjölbrautaskólans í Garðabæ varðandi samstarf um staðsetningu frisbígolfvallar við skólann, dags. 18.05.22.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 2205275

09

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um útlendinga (alþjóðleg vernd), 595 mál., dags. 17.05.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2205288

10

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036, 563. mál., dags. 18.05.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2205319

11

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, 592. mál., dags. 18.05.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2203101

12

Bókun fulltrúa minnihluta í skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi afgreiðslu fundargerðar.

Lagt fram.

Málsnúmer 2112120

13

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis.

Í úrskurðarorði kemur fram að kæru kærenda er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Málsnúmer 2112061

14

Úrskurður umhverfis- og auðlindamála varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.

Í úrskurðarorði kemur fram að kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun bæjarstjórnar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda frá 15. ágúst 2019 er vísað frá úrskurðarnefndinni. Þá er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun bæjarstjórnar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda frá 2. september 2021 hafnað.