Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar skólaárið 2022 - 2023.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (906). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir árið 2022 - 2023.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls varðandi málefni skólans og rifjaði upp umræðu um þörf fyrir stækkun húsnæðis skólans.
Bæjarráð Garðabæjar
02
28. (2035). fundur
Bæjarráð vísar tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi gjaldskrá skólárið 2022-2023 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
3. fundur
Lögð var fram tillaga um hækkun gjaldskrár Tónlistarskóla Garðabæjar vegna skólaársins 2022 - 2023. Lagt er til að hækka gjaldskrá um 7% sem er tæplega hækkun neysluverðsvísitölu sl. ár. Tillagan samhljóða samþykkt.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
3. fundur
Skóladagatal tónlistarskólans lagt fram til kynningar.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
06
2. fundur
Á fund skólanefndar koma Gunnar Einarsson, bæjarstjóri .
Formaður skólanefndar ræddi hugmyndir um að vinna að áætlun um stækkun skólans og skólastjóri fór yfir tölulegar upplýsingar um fjölda nemenda, stöðugildi kennara og fjölda á biðlista.
Bæjarstjóri tók undir hugmyndir að vinna að áætlun um stækkun skólans til að leggja fram við undirbúning fjárhagsáætlunar 2023.
Fulltrúar Garðabæjarlistans í skólanefnd lögðu áherslu á að hefja strax undirbúning að áætlun um stækkun og að setja ætti málið í forgang vegna mikillar eftirspurnar eftir tónlistrnámi og langs biðlista.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
07
1. fundur
Eftir að takmörkunum vegna Covid-19 var aflétt er starfsemi skólans nú með eðlilegum hætti. Mikið er um veikindi á meðal nemenda og kennara sem hefur talsverð áhrif á starfið. Framundan eru fjölmargir tónleikar s.s. blandaðir tónleikar, blásarasveitartónleikar, þátttaka í svæðistónleikum Nótunnar í Salnum í Kópavogi, þátttaka á Jazzhátíð Garðabæjar og á Stórsveitardeginum í Hörpu svo eitthvað sé nefnt auk hefðbundins skólastarfs.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
08
1. fundur
Lögð fram til kynningar og samþykktar. Skólanefndin samþykkti menntastefnuna.