Beint í efni

2. fundur

17.03.2022
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

2. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

17.03.2022

Kl. 08:30 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Einar Örn Magnússon - aðalmaður
  • Sólveig Guðrún Geirsdóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
  • Edda Björg Sigurðardóttir - deildarstjóri skóladeildar

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2203101

01

Málefni Tónlistarskólans - bæjarstjóri kemur á fundinn.

Á fund skólanefndar koma Gunnar Einarsson, bæjarstjóri .

Formaður skólanefndar ræddi hugmyndir um að vinna að áætlun um stækkun skólans og skólastjóri fór yfir tölulegar upplýsingar um fjölda nemenda, stöðugildi kennara og fjölda á biðlista.

Bæjarstjóri tók undir hugmyndir að vinna að áætlun um stækkun skólans til að leggja fram við undirbúning fjárhagsáætlunar 2023.

Fulltrúar Garðabæjarlistans í skólanefnd lögðu áherslu á að hefja strax undirbúning að áætlun um stækkun og að setja ætti málið í forgang vegna mikillar eftirspurnar eftir tónlistrnámi og langs biðlista.