Beint í efni

Ósk um yfirlýsingu frá Barnaverndarnefnd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, vegna reksturs á skammtímaheimili fyrir börn og ungmenni

Málsnúmer 2206349

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

8. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2206349, beiðni frá Klettabæ dags. 21.06.2022 þar sem óskað er eftir yfirlýsingu frá barnaverndarnefnd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, um að barnaverndarnefndin sjái því ekkert til fyrirstöðu að Klettabær setji á laggirnar bráðavistun skv. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 fyrir börn og ungmenni á miðhæð og efstu hæð í Breiðási 11. Málið fór fyrir fund fjölskylduráðs í ágústmánuði þar sem bókað var að barnaverndarnefnd Garðabæjar sæi ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi skammtímaheimili yrði sett á laggirnar. Óskað hefur verið eftir skýrari yfirlýsingu að um sé að ræða bráðavistun á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga. Málið er því lagt aftur fyrir fjölskylduráð til bókunar.

Afgreiðsla máls nr. 2206349. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga í greinargerð starfsmanns barnaverndarþjónustu, sér barnaverndarnefnd Garðabæjar ekkert því til fyrirstöðu að Klettabær setji á laggirnar bráðavistun skv. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, á miðhæð og efstu hæð að Breiðási 11, 210 Garðabæ.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

6. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2206349, tölvupóstur frá Klettabæ dags. 21.06.2022 þar sem óskað er eftir yfirlýsingu frá Barnavernd Garðabæjar, sbr. 2. mgr. 38. gr. reglugerðar nr. 652/2004, um að barnaverndarnefndin sjái því ekkert til fyrirstöðu að Klettabær setji á laggirnar skammtímaheimili fyrir börn og ungmenni á miðhæð og efstu hæð í Breiðási 11.

Afgreiðsla máls nr. 2206349. Á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga í greinargerð starfsmanns barnaverndarþjónustu, sér Barnaverndarnefnd Garðabæjar ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi skammtímaheimili verði sett á laggirnar.

Fylgiskjöl