Beint í efni

Samningur við Hjallastefnuna um starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.

Málsnúmer 2203116

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (907). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir samningnum sem er til afgreiðslu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um samninginn og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Öruggt rekstrarumhverfi er grunnforsenda þess að sjálfstætt starfandi skóli dafni og vaxi. Á sama tíma og það er mikilvægt að vera með undirritaðan samning við Hjallastefnuna er það afleitt að yfir honum hangi viðauki um ókláruð mál, hryggjastykkið sjálft, rekstrarframlagið. Viðreisn kallar eftir því að meirihlutinn leggi metnað sinn í að eyða slíkri óvissu hið fyrsta. Ekkert er verra en óvissa og ófyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi sem fyrst og fremst reiðir sig á pólitískan vilja og metnað þeirra sem fara með stjórn sveitarfélagsins sem starfað er innan.“

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um samninginn.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju um samninginn.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um samninginn.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um samninginn og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta að í samningi þessum ásamt viðauka felst ekki nein stefnubreytingu hjá sveitarfélaginu hvað varðar stuðning við fjölbreytt skólastarf og þar með rekstur sjálfstætt starfandi skóla. Garðabær hefur ávallt, á ýmsan hátt, sýnt í verki stuðning við starfsemi sjálfstætt starfandi skóla og mun gera það áfram.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju um samninginn.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning Hjallastefnuna um starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Bæjarráð Garðabæjar

02

29. (2036). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Bæjarráð Garðabæjar

03

15. (2022). fundur

Bæjarritari gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Hjallastefnunnar um gerð lóðarleigusamnings, greiðslu gatnagerðargjalda og leyfi vegna fjölgunar á lausum kennslustofum á lóðinni.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Hjallastefnunnar um um gerð nýs þjónustusamnings.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til áframhaldandi viðræðna um nýjan þjónustusamningi sem er forsenda fyrir gerð lóðarleigusamnings og fjölgunar á lausum kennslustofum.