29. (2036). fundur
29. (2036). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
23.08.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi sex mánaða skýrslu Betri samgangna ohf. um stöðu og framgang verkefna, dags. 17.08.22.
Á fund bæjarráðs mættu Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri og Þröstur Guðmundsson, forstöðumaður verkefna og áætlana hjá Betri samgöngum ohf.. Gerðu þeir nánari grein fyrir sex mánaða skýrslu Betri samgangna ohf., um stöðu og framgang einstakra verkefna
Fylgiskjöl
02
Eskiás 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eskiási 4 ehf., kt. 661021-1440, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 41 íbúð að Eskiási 4.
03
Kumlamýri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Páli Hólm Sigurðssyni, kt. 260577-3289, leyfi til að byggja parhús að Kumlamýri 2.
04
Kumlamýri 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Björgvin Gestssyni, kt. 150272-5649, leyfi til að byggja parhús að Kumlamýri 4.
05
Kumlamýri 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Val Guðbrandssyni, kt. 261151-4809, leyfi til að byggja parhús að Kumlamýri 14.
06
Kumlamýri 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir að afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hauki Gunnarssyni, kt. 120586-3359, leyfi til að byggja parhús að Kumlamýri 16.
07
Lyngás 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lyngási 13 ehf., kt. 561110-0180, leyfi til að breyta innra skipulagi í núverandi atvinuhúsnæði að Lyngási 13.
08
Seinakur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Agli Arnari Birgissyni, kt. 020978-5709, leyfi til að byggja einbýlishús að Seinakri 4.
09
Smáraflöt 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rafblikki ehf., kt. 460112-1920, leyfi fyrir niðurrifi bílskúrs við einbýlishúsið að Smáraflöt 20.
10
Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum.
Lögð fram drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum.
Bæjarráð vísar drögunum til kynningar í leikskólanefnd.
11
Tilkynning frá Jafnréttisstofu varðandi landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga, dags. 16.08.22.
Í tilkynningunni er boðað til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga fimmtudaginn 15. september 2022.
12
Bréf EDLB og GFP varðandi umsókn um framlag vegna tímabundinnar leikskóla- og grunnskóladvalar erlendis, dags. 15.08.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
13
Samningur við Hjallastefnuna ehf. um starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
14
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni af fjáröflunarkvöldi handknattleiksdeildar Stjörnunnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.