11. (907). fundur
11. (907). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
01.09.2022
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - 1. varaforseti
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Guðfinnur Sigurvinsson, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 18. ágúst 2022 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2208023F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/8 ´22.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2208032F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 30/8 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022 og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Niðurstaða árshlutauppgjörs sýnir að grunnrekstur bæjarsjóðs stendur í 1,3 ma.kr í mínus. Við í Viðreisn viljum undirstrika mikilvægi gagnsæis í upplýsingagjöf til íbúa Garðabæjar um rekstrarstöðu sveitarfélagsins. Ábyrg fjármálastjórn snýst um traustan og sjálfbæran rekstur og því mikilvægt að rýna afkomuna sérstaklega með tilliti til grunnrekstrar sem við bæjarfulltrúar berum ábyrgð á að gera sem sjálfbærastan.“
Almar Guðmundson, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022 og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn leggur áherslu á að raunveruleg staða fjármála sé íbúum ljós. Rekstur sveitarfélagsins mun ekki geta treyst á lóðasölu til lengri tíma og mikilvægt að grunnreksturinn sé tryggur til frambúðar.“
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2208014F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 17/8 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 10. tl., skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., móttöku flóttafólks frá Úkraínu og 10. tl., skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2208016F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17/8 ´22.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., starfsáætlun ÍTG 2022-2023 og 3. - 14. tl., ferðastyrki til landsliðsverkefna íþróttafólks.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., akstur frístundabílsins með börn í íþróttir og aðrar tómstundir.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., akstur frístundabílsins með börn í íþróttir og aðrar tómstundir.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., akstur frístundabílsins með börn í íþróttir og aðrar tómstundir.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., akstur frístundabílsins með börn í íþróttir og aðrar tómstundir.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2206040F
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 24/8 ´22.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., skólabyrjun og vék að því að ekki er boðið upp á tómstunda- og félagsstarf í Urriðaholtsskóla.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., skólabyrjun og skýrði nánar fyrirkomulag á tómstunda- og félagsstarfi í Urriðaholtsskóla.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 2. tl., skólabyrjun og tómstunda- og félagsstarf í grunnskólum.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um 2. tl.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju um 2. tl.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2208017F
06
Fundargerð umhverfisnefndar frá 17/8 ´22.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2201365
07
Fundargerð stjórnar SSH frá 12/8 ´22.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., fjármögnum málaflokks fatlaðs fólks.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2201214
08
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 4/7 og 15/8 ´22.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., fg. frá 4/7, næturstrætó, 1. tl., fg. frá 15/8, árshlutauppgjör, 2. tl., fg. frá 15/8, forsendur fjárhagsáætlunar 2023-2027 og 5. tl., fg. frá 15/8, önnur mál - Klapp, greiðslukerfi Strætó
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi almennt um nauðsyn á eflingu almenningssamgangna.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., fg frá 4/7, næturstrætó
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., fg frá 4/7, næturstrætó og almennt um stöðu almenningssamgangna.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi almennt um stöðu almenningssamgangna
Björg Fenger, ræddi almennt um stöðu almenningssamgangna
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi almennt um stöðu almenningssamgangna.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi almennt um stöðu almenningssamgangna.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 2201292
09
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 19/5 ´22.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2202087
10
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 12/8 ´22.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2208859
11
Tillaga Garðabæjarlistans um frítt í sund fyrir starfsfólk Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að starfsfólk Garðabæjar fái frítt í sund í Garðabæ gegn framvísun starfsmannaskírteinis.“
Greinargerð
Mikilvægt er að starfsfólk Garðabæjar finni að þau séu metin að verðleikum og fái aukin tækifæri og hvatningu til heilsuræktar utan vinnutíma. Að gefa starfsfólki frítt í sund er tiltölulega einföld aðgerð sem ýtir undir jákvætt viðhorf til Garðabæjar sem vinnustaðar og er liður í að skapa heilsueflandi samfélag.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að vísa tillögunni til bæjarstjóra og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Almar lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að starfsmenn bæjarins séu hvattir til almennrar heilsueflingar. Þá þarf að leggja áherslu á að vinnuumhverfi sé aðlaðandi og vinnuaðstæður góðar. Mannauðsstefna Garðabæjar, lýðheilsu- og forvarnarstefna bæjarins og þau heimsmarkmið sem Garðabær hefur ákveðið að innleiða styðja við þetta.
Framkomin tillaga fjallar um afmarkaðan þátt sem eðlilegt er að tekinn verði til skoðunar í víðara samhengi. Er því lagt til að tillögunni verði vísað til bæjarstjóra og til gerðar fjárhagsáætlunar með það að markmiði að unnið verði að heildstæðri nálgun á þeim hlunnindum sem ýtt geta undir heilsueflingu starfsmanna bæjarins.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarstjóra og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Málsnúmer 2208863
12
Tillaga Viðreisnar um stafræna stefnu Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að stofna starfshóp sem mun vinna með verkefnastjóra við að útfæra stafræna stefnu fyrir sveitarfélagið fyrir 1. nóvember 2022. Starfshópur setur í framhaldinu upp markvissa aðgerðaráætlun til tveggja ára fyrir 1.febrúar 2023.“
Greinargerð
Eitt af markmiðum Garðabæjar, samkvæmt þjónustustefnunni sem sett var árið 2016, er að bærinn sé í fararbroddi sveitarfélaga í þjónustu til íbúa og viðskiptavina. Til að geta uppfyllt þessi markmið er brýnt að sveitarfélagið sé einnig í fararbroddi þegar kemur að þeirri þróun sem á sér stað í stafrænni umbreytingu.
Við þurfum að sjá markvissar aðgerðir í stafrænni þróun því ávinningurinn er betri þjónusta við bæjarbúa og tímasparnaður fyrir okkur öll auk fjárhagslegrar hagræðingar. Að fjárfesta í stafrænni þróun eykur einnig skilvirkni og gagnsæi í stjórnsýslunni auk þess að hafa jákvæð áhrif á umhverfið okkar og ýta undir aukna nýsköpun.
Garðabær hefur alla burði til þess að vera leiðandi í stafrænni þjónustu. Það skiptir máli að vita hvert skal stefna á sama tíma og sameiginlegar lausnir sveitarfélaga eru innleiddar.
Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Árið 2020 skipaði bæjarstjórn starfshóp til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ. Hugmyndafræði vinnu var mótuð og ráðgjafafyrirtækið Parallel fengið í samvinnu til að greina möguleg verkefni fyrir Garðabæ og forgangsraða þeim. Afrakstur vinnunnar var kynntur fyrir bæjarráði í maí 2020. Síðan hefur verið unnið á grundvelli skýrslunnar undir forystu sérstaks verkefnastjóra um starfræna þróun. Dæmi um verkefni sem hefur verið lokið síðan eru stafrænt sundkort, umhverfisgátt, stafrænt sorphirðudagatal og skráningarkerfi fyrir frístund.
Á grunni vinnu starfshópsins hefur Garðabær líka tekið þátt í verkefnum með öðrum sveitarfélögum, en á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er unnið af krafti að miðlægu samstarfi sveitarfélaga til að auðvelda þeim að verða virkir þátttakendur í stafrænni þróun og nýta tæknina til að bæta þjónustu og samskipti við íbúa. Hefur Garðabær verið virkur þátttakandi í þessari vinnu. Dæmi um verkefni sem þessu tengjast eru stafrænt umsóknaferli fyrir leikskóla og fyrir fjárhagsaðstoð, ásamt tengingu við upplýsingakerfi Skattsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja eðlilegt að fella framkomna tillögu um þetta mikilvæga málefni, enda liggur fyrir skýr hugmyndafræði um stafræna framþróun í Garðabæ.“
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls um framkomna tillögu.
Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um framkomna tillögu
Framkomin tillaga er felld með atkvæðum sjö bæjarfulltrúa (GS,AG,BF,MB,HBE,GVG,BThB). Þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með samþykkt tillögunnar (SDS,ÞÞ,HÞ). Einn bæjarfulltrúi sat hjá (BDG)
Málsnúmer 2203116
13
Samningur við Hjallastefnuna um starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samningnum sem er til afgreiðslu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um samninginn og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Öruggt rekstrarumhverfi er grunnforsenda þess að sjálfstætt starfandi skóli dafni og vaxi. Á sama tíma og það er mikilvægt að vera með undirritaðan samning við Hjallastefnuna er það afleitt að yfir honum hangi viðauki um ókláruð mál, hryggjastykkið sjálft, rekstrarframlagið. Viðreisn kallar eftir því að meirihlutinn leggi metnað sinn í að eyða slíkri óvissu hið fyrsta. Ekkert er verra en óvissa og ófyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi sem fyrst og fremst reiðir sig á pólitískan vilja og metnað þeirra sem fara með stjórn sveitarfélagsins sem starfað er innan.“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um samninginn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju um samninginn.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um samninginn.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um samninginn og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta að í samningi þessum ásamt viðauka felst ekki nein stefnubreytingu hjá sveitarfélaginu hvað varðar stuðning við fjölbreytt skólastarf og þar með rekstur sjálfstætt starfandi skóla. Garðabær hefur ávallt, á ýmsan hátt, sýnt í verki stuðning við starfsemi sjálfstætt starfandi skóla og mun gera það áfram.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju um samninginn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning Hjallastefnuna um starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Málsnúmer 2208695
14
Siðareglur - endurskoðun
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði endurskoðun á siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ og lagði til að vísa reglunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Málsnúmer 2208694
15
Samþykktir Garðabæjar - endurskoðun
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar og lagði til að vísa samþykktunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa samþykktum um stjórn Garðabæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn.