Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 30/8 ´22.

Málsnúmer 2208032F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (907). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022 og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Niðurstaða árshlutauppgjörs sýnir að grunnrekstur bæjarsjóðs stendur í 1,3 ma.kr í mínus. Við í Viðreisn viljum undirstrika mikilvægi gagnsæis í upplýsingagjöf til íbúa Garðabæjar um rekstrarstöðu sveitarfélagsins. Ábyrg fjármálastjórn snýst um traustan og sjálfbæran rekstur og því mikilvægt að rýna afkomuna sérstaklega með tilliti til grunnrekstrar sem við bæjarfulltrúar berum ábyrgð á að gera sem sjálfbærastan.“

Almar Guðmundson, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022 og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn leggur áherslu á að raunveruleg staða fjármála sé íbúum ljós. Rekstur sveitarfélagsins mun ekki geta treyst á lóðasölu til lengri tíma og mikilvægt að grunnreksturinn sé tryggur til frambúðar.“

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.