Tillaga Garðabæjarlistans um frítt í sund fyrir starfsfólk Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (907). fundur
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að starfsfólk Garðabæjar fái frítt í sund í Garðabæ gegn framvísun starfsmannaskírteinis.“
Greinargerð
Mikilvægt er að starfsfólk Garðabæjar finni að þau séu metin að verðleikum og fái aukin tækifæri og hvatningu til heilsuræktar utan vinnutíma. Að gefa starfsfólki frítt í sund er tiltölulega einföld aðgerð sem ýtir undir jákvætt viðhorf til Garðabæjar sem vinnustaðar og er liður í að skapa heilsueflandi samfélag.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Ingvar Arnarson, bæjarfulltrúar.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að vísa tillögunni til bæjarstjóra og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Almar lagði fram eftirfarandi bókun.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að starfsmenn bæjarins séu hvattir til almennrar heilsueflingar. Þá þarf að leggja áherslu á að vinnuumhverfi sé aðlaðandi og vinnuaðstæður góðar. Mannauðsstefna Garðabæjar, lýðheilsu- og forvarnarstefna bæjarins og þau heimsmarkmið sem Garðabær hefur ákveðið að innleiða styðja við þetta.
Framkomin tillaga fjallar um afmarkaðan þátt sem eðlilegt er að tekinn verði til skoðunar í víðara samhengi. Er því lagt til að tillögunni verði vísað til bæjarstjóra og til gerðar fjárhagsáætlunar með það að markmiði að unnið verði að heildstæðri nálgun á þeim hlunnindum sem ýtt geta undir heilsueflingu starfsmanna bæjarins.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarstjóra og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.