Beint í efni

Tillaga Viðreisnar um stafræna stefnu Garðabæjar.

Málsnúmer 2208863

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (907). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að stofna starfshóp sem mun vinna með verkefnastjóra við að útfæra stafræna stefnu fyrir sveitarfélagið fyrir 1. nóvember 2022. Starfshópur setur í framhaldinu upp markvissa aðgerðaráætlun til tveggja ára fyrir 1.febrúar 2023.“

Greinargerð
Eitt af markmiðum Garðabæjar, samkvæmt þjónustustefnunni sem sett var árið 2016, er að bærinn sé í fararbroddi sveitarfélaga í þjónustu til íbúa og viðskiptavina. Til að geta uppfyllt þessi markmið er brýnt að sveitarfélagið sé einnig í fararbroddi þegar kemur að þeirri þróun sem á sér stað í stafrænni umbreytingu.
Við þurfum að sjá markvissar aðgerðir í stafrænni þróun því ávinningurinn er betri þjónusta við bæjarbúa og tímasparnaður fyrir okkur öll auk fjárhagslegrar hagræðingar. Að fjárfesta í stafrænni þróun eykur einnig skilvirkni og gagnsæi í stjórnsýslunni auk þess að hafa jákvæð áhrif á umhverfið okkar og ýta undir aukna nýsköpun.
Garðabær hefur alla burði til þess að vera leiðandi í stafrænni þjónustu. Það skiptir máli að vita hvert skal stefna á sama tíma og sameiginlegar lausnir sveitarfélaga eru innleiddar.

Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Árið 2020 skipaði bæjarstjórn starfshóp til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ. Hugmyndafræði vinnu var mótuð og ráðgjafafyrirtækið Parallel fengið í samvinnu til að greina möguleg verkefni fyrir Garðabæ og forgangsraða þeim. Afrakstur vinnunnar var kynntur fyrir bæjarráði í maí 2020. Síðan hefur verið unnið á grundvelli skýrslunnar undir forystu sérstaks verkefnastjóra um starfræna þróun. Dæmi um verkefni sem hefur verið lokið síðan eru stafrænt sundkort, umhverfisgátt, stafrænt sorphirðudagatal og skráningarkerfi fyrir frístund.
Á grunni vinnu starfshópsins hefur Garðabær líka tekið þátt í verkefnum með öðrum sveitarfélögum, en á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er unnið af krafti að miðlægu samstarfi sveitarfélaga til að auðvelda þeim að verða virkir þátttakendur í stafrænni þróun og nýta tæknina til að bæta þjónustu og samskipti við íbúa. Hefur Garðabær verið virkur þátttakandi í þessari vinnu. Dæmi um verkefni sem þessu tengjast eru stafrænt umsóknaferli fyrir leikskóla og fyrir fjárhagsaðstoð, ásamt tengingu við upplýsingakerfi Skattsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja eðlilegt að fella framkomna tillögu um þetta mikilvæga málefni, enda liggur fyrir skýr hugmyndafræði um stafræna framþróun í Garðabæ.“

Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls um framkomna tillögu.

Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um framkomna tillögu

Framkomin tillaga er felld með atkvæðum sjö bæjarfulltrúa (GS,AG,BF,MB,HBE,GVG,BThB). Þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með samþykkt tillögunnar (SDS,ÞÞ,HÞ). Einn bæjarfulltrúi sat hjá (BDG)