Beint í efni

38. (1946). fundur

29.09.2020
Bæjarráð Garðabæjar

38. (1946). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.09.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 - hættustig almannavarna.

Bæjarstjóri sagði frá því að búið er aðgreina bæjarskrifstofurnar í tvö hólf, hluti starfsmanna vinnur heima og flestir fundir eru haldnir með fjarfundarbúnaði.

Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og var farið yfir kynningarefni frá fundinum og sagt frá helstu áherslum.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir stöðunni í leik- og grunnskólum en allir skólar bæjarins starfa eðlilega miðað við aðstæður í Covid.

Rætt var um verklagsreglur sem eru í gildi þegar smit kemur upp í skólum.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-4.

.

Málsnúmer 2006130

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).

Fjármálastjóri gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun en gögn hafa verið send til forstöðumanna og sviðsstjóra til frekari vinnslu. Gera má ráð fyrir að tillögur forstöðumanna liggi fyrir í byrjun október og fyrstu drög liggi fyrir eftir miðjan október.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við ríkið um aðgerðir til að styðja við sveitarfélögin og upplýsti um stöðu byggðasamlaganna.

Málsnúmer 1904109

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Lántaka.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 500 mkr verðtryggt með 0,75% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 14 ára.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fyrir liggja drög að lánssamningi.

Málsnúmer 1904109

04

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Viðauki.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 7 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 7.

Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1.800 m.kr. Með viðauka nr. 1 sem samþykktur var í bæjarstjórn 04.06.2020 var samþykkt hækkun á lántöku að fjárhæð 375 mkr eða samtals lántökuheimild 2.175 mkr

Lagt er til að lántökuheimild ársins hækki um kr. 500 mkr og verði 2.675 mkr.

Málsnúmer 2007660

05

Litlabæjarvör 22 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Þór Hjálmarssyni, kt. 130482-3419 leyfi til að byggja einbýlishús að Litlabæjarvör 22.

Málsnúmer 1802203

06

Brekkugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fagsmíði Fasteignum ehf., kt. 431013-0100 leyfi til að stækka svalir, fjarlægja glugga og staðsetja garðskála á svölum raðhúss sem er í byggingu á lóðinni að Brekkugötu 8.

Málsnúmer 2009405

07

Áskorun Félags atvinnurekenda til sveitarfélaga varðandi álagningu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði, dags. 18.09.2020.

Lögð fram áskorun Félags atvinnurekenda til sveitarfélaganna um að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir árið 2021.

Bæjarráð vísar áskoruninni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009471

08

Tölvupóstur AT varðandi framkvæmdir við stækkun bílskúrs að Reynilundi 11.

Lagður fram tölvupóstur Albínu Thordarson þar sem mótmælt er framkvæmdum við stækkun bílskúrs raðhússins að Reynilundi 11.

Bæjarráð vísar til samþykktar frá síðasta fundi á afgreiðslu byggingarfulltrúar vegna tilkynningar um framkvæmd sem undanþegin er byggingarleyfi samkvæmt grein 2.3.5 í byggingarreglugerð.

Málsnúmer 2009461

09

Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi mögulega breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæðum, dags. 22.09.2020.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009499

10

Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru á ákvörðun um grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis, dags. 23.09.2020.

Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 25. september 2020 þar sem kærunni er vísað frá.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009500

11

Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2020, dags. 20.09.2020.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 2.133.366 til greiðslu fasteignagjalda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009544

12

Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi notkun reiðstíga til hjólreiðakeppni, dags. 25.09.2020.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009224

13

Bréf Aflsins um styrk árið 2021, dags. 18.09.2020.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Málsnúmer 2009501

14

Bréf íbúa við Smáraflöt varðandi framkvæmdir við götuna, dags. 20.09.2020.

Í bréfinu er vísað til ófullnægjandi frágangs á malbikun götunnar og skilum verktaka á framkvæmdum við götuna.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir framkvæmdum við endurnýjun lagna og frágangs á yfirborði við Lindarflöt og Smáraflöt. Fram kom að fyrirhugað er að laga frágang á malbiki þegar aðstæður leyfa.

Bæjarráð þakkar íbúum við Smáraflöt fyrir góðar ábendingar og felur tækni- og umhverfissviði að undirbúa nauðsynlegar lagfæringa varðandi frágang á malbiki.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2007149

15

Tilboð í byggingarrétt einbýlishúsalóða við Ægisgrund 3, Ægisgrund 5 og Brúnás 12.

Á fundinum voru opnuð umslög með tilboðum í lóðirnar við Ægisgrund 3, Ægisgrund 5 og Brúnás 12.

Alls bárust tvö tilboð í lóðina við Ægisgrund 3, þrjú tilboð í lóðina við Ægisgrund 5 og ekkert tilboð í lóðina við Brúnás 12

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tilboð með fyrirvara um staðfestingu á fjármögnun og undirritun úthlutunarsamnings í samræmi við söluskilmála.

Ægisgrund 3 kr. 24.000.000 án gatnagerðargjalda, bjóðandi Sumardalur ehf., kt. 510995-2369.

Ægisgrund 5 kr. 24.000.000 án gatnagerðargjalda, bjóðandi Sumardalur ehf., kt. 510995-2369.